15.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 409 í B-deild Alþingistíðinda. (172)

7. mál, háskóli

Framsögumaður (Lárus H. Bjarnason):

Háskólamálið er ekki gamalt. Að vísu var samþykt frumv. um landsskóla á alþingi 1883 og sams konar frumv. var samþykt í neðri deild 1885. En frumv. um stofnun háskóla var fyrst borið upp á alþingi 1891 og samþykt í neðri deild, en féll í efri deild; enda þá kallað »blóðlaus hugmynd«. Málið var tekið upp aftur 1893 og þá samþykt í báðum deildum, en hugmyndin fór þó fyrst að safna holdi eftir 1893, með stofnun háskólasjóðsins.

Aftur á móti er lagaskólamálið gamalt. Það var til jafnsnemma og hið endurreista alþingi, enda borið upp á fyrsta þinginu, 1845, og síðan á dagskrá þingsins árin 1855—87, 1893—97, 1903 og 1907. En þó að frumvörp alþingis 1883, 1885, 1891 og 1893 væru kend við landsskóla, þá voru þau í raun og veru ekki annað en frumvörp um stofnun lagaskóla, gamla hugmyndin í nýjum búningi. Líklega hefir þó lagaskólamálið verið sótt svo fast, sem raun varð á, meðfram vegna vonarinnar um það, að háskólamálið mundi verða auðsóttara, þegar lagaskólinn væri kominn á.

Nú er lagaskólinn fenginn, og eg vona, að horfurnar fyrir honum séu ekki lakari en spárnar í efri deild alþingis 1907. Embættaskólarnir eru nú orðnir 3, og sé heimspekiskenslan á prestaskólanum talin sérstök deild, eða vísir til sjálfstæðrar deildar, eru þannig fengnir hornsteinarnir 4, sem byggja má á, og byggja á á íslenzkan háskóla.

Þetta hefir þing og stjórn fundið. Þess vegna samþykti neðri deild alþingis 1907 í einu hljóði að skora á landstjórnina, að »endurskoða núgildandi lög um lagaskóla, læknaskóla og prestaskóla, og semja frumvarp um stofnun háskóla, er verði lagt fyrir alþingi 1909«. Stjórnin varð við þessari áskorun og fal forstöðumönnum embættaskólanna 3 að semja frumvarp í þá átt. Þeir hafa búið til frumvarp það, er hér liggur fyrir, og er það í flestum aðalatriðunum sniðið eftir norsku háskólalögunum frá 1905. Þannig er frumvarp þetta til orðið.

Háttv. deildarmenn munu sjá, að mál þetta hefir til allrar hamingju ekki orðið flokksmál í nefndinni, og því er vonandi, að það verði auðsótt. Nefndin er í rauninni samdóma stjórninni um frumvarpið og ástæðurnar fyrir því, enda þó hún ráði til nokkurra breytinga, og mætti því vísa til athugasemda stjórnarinnar og nefndarálitsins á þingskj. 173, og það því fremur, sem frumvarpinu fylgja ítarlegar ástæður forstöðumanna embættaskólanna.

En af því að hér er nýr og góður gestur á ferðinni, af því að alþingi ræðir nú málið í fyrsta sinni með fullri vissu um, að það ræður forlögum þess, þá þykir mér hlýða, að fylgja því á leið með nokkrum orðum.

Margir munu líta svo á, að hlutverk háskóla sé það eitt, að klekja út embættismannaefnum. Það er líka meðal annars hlutverk hvers háskóla. En háskóli er jafnframt annað og meira. Hann er um leið aðaluppspretta allrar mentunar síns lands, bæði almennrar mentunar og sérmentunar. Þaðan renna allir aðalstraumar mentunarinnar og kvíslast út í yztu æsar þjóðlíkamans, eins og blóðið rennur frá hjartanu út um allan líkama mannsins. Þar eiga t. d. tveir hinna sterkustu menningarstrauma samtíðarinnar upptök sin, lýðháskólahugmyndin og alþýðufræðsla sú, sem kölluð er »university extension« og nefna mætti á íslenzku háskóla-farandfræðslu. En auk þess sem háskóli er aðaluppspretta allrar mentunar og menningar, er hann líka vermireitur tungu og annara þjóðhelgidóma. Enda er sagt að Finnar telji háskóla sinn beztu verjuna gegn Rússum, og alkunnugt er, að Norðmenn spruttu upp eins og fjöður, þegar þeir höfðu fengið háskóla sinn.

Norðurlandaþjóðirnar hafa allar fyrir löngu eignast háskóla, Svíar 1477, Danir 1478, Finnar 1640 og Norðmenn 1812. Allir nema vér.

En er nú ekki líka kominn vitjunartími vor Íslendinga? Er ekki kominn tími til að vér eignumst það 1909, sem frændþjóðir vorar flestar hafa átt svo hundruðum ára skiftir? Eigum vér engan gróður, sem vert sé að hlúa að? Eigum vér ekki tungu, lög, sögu og aðrar þjóðgersemar?

Og þurfi aðrar þjóðir vermireit handa sínum gróðri, hversu miklu fremur þurfum vér Íslendingar hans þá ekki, vér sem erum afskektari en aðrir og kaldara er kringum en flesta aðra. Jú, sannarlega ætti vitjunartími vor að vera kominn.

Auk þess verður íslenzk sérfræði, tunga, lög og saga hvergi kend eins vel og í landinu sjálfu, á innlendum skóla, sem stjórnar sér sjálfur og ábyrgist sig sjálfur, með öðrum orðum á íslenzkum háskóla.

Eignumst vér slíkan skóla, mun oss og haldast betur á mannsefnum vorum en hingað til. Vér höfum mist of margt mannsefnið við dvöl námsmanna vorra í Danmörku, og stundum ekki lökustu efnin.

Mikill hluti námskostnaðar íslenzkra embættismannaefna hefir hingað til gengið út úr landinu. Ef vér stofnun hér háskóla, þá græðum vér það fé; það verður þá kyrt í landinu.

Loks er þess að geta, að auk Íslendinga myndu útlendir námsmenn koma hingað víðs vegar að til þess að stunda hér nám í íslenzkum fræðigreinum. Þeir sem nú sækja þann fróðleik til annarra háskóla, mundu þá sækja hann hingað. Þannig mundi háskólinn verða oss bæði til gagns og sóma.

Vitjunartími vor er því sannarlega kominn og engin ástæða til að bíða lengur. Þær ástæður, sem færðar hafa verið til móti stofnun háskóla, eru rakalausar eða rakalitlar.

Ein er sú, að vér séum of fámennir. Það er satt, vér erum fámennir. En því minna bolmagn og fjármagn sem vér höfum, þess lífsnauðsynlegra er oss að auka hið innra magn vort. Því veikari, sem ytri verjurnar eru, því lífsnauðsynlegra er að vanda sem bezt til innri verjanna.

Þá er fátæktin. En við þeirri mótbáru liggja þau svör, að megnið af tilkostnaðinum, sem sé allan stofnkostnaðinn eða byggingarkostnaðinn, má spara í bráðina. Það þarf ekki að byggja hús yfir háskólann. Það má nota efri bygð mentaskólans fyrst um sinn. Þar eru 11 herbergi, og af þeim notar skólinn nú að eins 2 sem bekki. Hin eru sumpart notuð til íbúðar og sumpart til annars. Í neðri bygðinni eru 4 herbergi, sem umsjónarkennarinn notar. Það mætti byggja þeim 2 kennurum, sem búa í skólanum, út og fá mentaskólanum herbergin, sem losnuðu niðri, og gæti þá háskólinn fengið alla efri bygðina. Háskólinn fengi þannig 11 herbergi, og það ætti að vera viðunanlegt fyrst um sinn. Með því móti gæti lagadeildin, prestadeildin og heimspekisdeildin, hver um sig fengið 2 herbergi, læknadeildin 4 herbergi, og þó yrði ein stofa afgangs, sem nota mætti sem kennarastofu.

Verði þessi kostur tekinn, kemur ekki til neins stofnunarkostnaðar. Þvert á móti mundi heldur vinnast en tapast frá því sem nú er, með þessu móti. Það kostar mikið fé, að hafa skólana hvern í sínu lagi, eins og nú er, og þó óviðunanlegt húsrúmið, sem sumir þeirra hafa. Það er áætlað, að selja mætti prestaskólahúsið með lóð fyrir 20 þús. kr. Geri maður 5% vexti af því fé, koma út 1000 kr. Prestaskólinn borgar þannig 1000 kr. árlega í leigu fyrir þetta eina herbergi, sem hann notar, og liggur það að eldhúsi öðru megin en safnfor hinu megin. Læknaskólinn hefir gamalt og lélegt hús á leigu fyrir 1000 kr. og lagaskólinn nokkurn vegin viðunanleg herbergi fyrir 360 kr. Þannig borga þessir 3 skólar 2360 kr. í húsaleigu árlega, og má óhætt gera það að 2500 kr., því að búast má við að leigan fyrir lagaskólann hækki. Hins vegar þyrfti að bæta þeim kennurum, sem flyttu úr mentaskólanum, íbúðina þar; fá þeim t. d. 400 kr. húsaleigustyrk hvorum, og mundi þannig sparast töluvert fé við að koma öllum skólunum fyrir í mentaskólahúsinu.

Reksturskostnaður háskólans verður ekki meiri en svo, að nema mundi 28 aura nefskatti, þó að frumv. stjórnarinnar um laun háskólakennara, verði samþykt óbreytt. Og þeim, sem vex jafn lítill kostnaður í augum, fyrir jafn nytsama stofnun, og háskóli er, þeim er háskólamálið ekki alvörumál. Annars á þessi kostnaðargrýla lítinn rétt á sér. Það er öðru nær en að sá kostnaður tapist landinu. Þeir peningar, sem landsjóður leggur fram, hafa í rauninni að eins vasaskifti, renna úr einum íslenzkum vasa í annan eða aðra, og renna meira að segja að meiru eða minna leyti aftur í landsjóð, sem skattar, tollar o. fl.

Enn hefir það heyrst, að skólinn mundi verða ómyndarlegur, hann mundi kafna undir nafninu. Það er auðvitað, að skólinn getur ekki orðið jafnsnjall góðum útlendum háskólum yfirleitt. En í sumum greinum ætti hann að geta veitt betri fræðslu, sem sé í öllum íslenzkum fræðum. Og hafi kenslan við lækna- og prestaskólann verið viðunanleg hingað til, þá ætti hún ekki að verða lakari er skólarnir væri sameinaðir, og fengju að stjórna sér sjálfir.

Loks óttast nokkrir, að íslenzkir námsmenn yrðu einangraðir frá heimsmenningunni, ef þeir hættu að stunda nám í Kaupmannahöfn. Við því er það ráð, að senda þá utan, þegar þeir væru orðnir fleygir, þegar þeir hefðu lokið sér af hér heima. Þeir mundu með því kynnast menningu annara þjóða miklu betur en nú gerist, er þeir fara utan sem óþroskaðir unglingar. Gjafasjóður Hannesar Arnasonar er nú orðinn um 60 þús. kr. Ef vöxtunum af þeirri upphæð, kringum 3000 kr., væri varið til utanfara handa efnilegum námsmönnum, væri hægt að senda 1 eða 2 námsmenn utan á hverju ári. Og það væri ekki ósanngjarnt, að landsjóður bætti nokkru við. Eg get þess, að mér finnst sjálfsagt að breyta skipulagsskránni fyrir gjafasjóð Hannesar Árnasonar, þannig að styrkveitingin verði ekki bundin við heimspekinga eina, heldur verði styrkurinn veittur efnilegum námsmönnum, án nokkurs tillits til fræðigreinar. Háskólasjóðinn, um 8000 kr., ætti að brúka til þess að styrkja fátæka nemendur til bókakaupa. Og vonandi bætast fleiri slíkir sjóðir við með tímanum.

Um frumv. sjálft er það að segja, að það fer aðallega fram á sameining þeirra þriggja deilda, sem nú eru til, gerir unitas-universitas — ex trinitate, eining úr þrenning. En auk þess á að bæta við einni deild til kenslu í íslenzkum fræðum, tungu, sögu og bókmentum. Og er það sannast sagt, að ekki er vansalaust, að Íslendingar sæki lengur út úr landinu fræðslu í slíkum greinum. Í þessari deild á jafnframt að kenna heimspekileg forspjallsvísindi, sem kend hafa verið við prestaskólann. Nýja deildin er engu ónauðsynlegri en lögfræðisdeildin, sem sótt hefir verið af jafnmikilli nauðsyn og kappi í meira en 2 mannsaldra, og nú loks er fengin.

Annars er frumv. ekki annað en umgerð, sem fylla má út í á ýmsan veg, stakkur, þó skorinn við vöxt. Þar er t. d. ekkert til tekið um kennarafjölda, ekkert um hús. Aðeins aðaldrættirnir: sameining — sjálfstjórn, og er ekki sízt seinni liðurinn alveg ómissandi. Með sjálfstjórninni vex ábyrgðartilfinningin og með henni aftur kappið, kapp milli deildanna og kapp innan deilda, annars vegar milli kennaranna og hins vegar milli nemendanna.

Og afhendi eg að svo mæltu háttv. deild málið, annað mesta velferðarmál landsins, í nafni nefndarinnar og í því trausti, að allir háttv. deildarmenn, allir háttv. alþingismenn, allir einlægir Íslendingar vilji:

»orkuna styrkja, viljann hvessa,

vonina glæða, hugann hressa,

farsældum vefja lýð og láð«.

Frumv. vísað til 2. umr. í e. hlj.