19.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1267 í B-deild Alþingistíðinda. (1729)

33. mál, botnvörpuveiðar

Framsögumaður (Jón Þorkelsson):

Eg þarf varla að fara að hafa langt skraf um þetta mál. Ástæður eru lagðar hér fram frá báðum hliðum.

Frumv. þetta er fram komið að ósk hérlendra botnvörpuskipstjóra. Þeir hafa beðið um undanþágu í þá átt, sem frumv. fer, frá gildandi lögum, og bera fyrir sig verkatöf. Auk þess segja þeir, að framkvæmd ákvæða laganna hafi hættu í för með sér og að þar af hljótist oft slys, þegar ilt er í sjó. Það er og enn borið fram, að slík ákvæði sem þau, sem hér er farið fram á að veita undanþágu frá, séu ekki í norskum lögum sams konar, sömuleiðis ekki í þýzkum lögum og jafnvel ekki víðar. Mál þetta bar á góma við yfirmann varðskipsins hér; taldi hann að vísu nokkur tormerki á undanþágunni gæzlunnar vegna. Þó skildist mér hann ekki telja hana ókleyfa. — Og með því, að aðilum var þetta svo mikið kappsmál, þá hefir nefndin álitið rétt, að koma fram með frumv. þetta. En jafnframt hefir þó nefndin tekið upp ákvæði um það, að skipin, sem undanþáguna fá, hefðu sérstakt merki, til auðkennis frá öðrum skipum, er sigla með sama flaggi.

Mér finst rétt, að frumv. sé samþykt til reynslu; ef undanþágan reynist óhentug, þá má nema þessi lög úr gildi þegar á næsta þingi.