19.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1272 í B-deild Alþingistíðinda. (1732)

33. mál, botnvörpuveiðar

Framsögumaður (Jón Þorkelsson):

Eg skal að eins geta þess, að eg felst að mestu á það, sem háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) sagði. Það fer fult svo vel á því, að breyta frumv. í þá átt, að einmitt stjórninni veitist heimild til að veita þessa undanþágu þeim íslenzkum skipum, sem skrásett eru hér sem íslenzk eign og sérstaklega þurfa þessa. Einkanlega eru það skip, sem ganga hér frá Faxaflóa.

Það stendur að vísu ekki heima, sem foringi varðskipsins sagði háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) um tímatöfina, við það sem fiskimenn hafa látið í ljósi; þeir hafa talið það ½ tíma verk eða meira að ganga frá veiðarfærunum.

Eg álít, að eitthvað eigi að gera til að liðka fyrir mönnum, sem telja sér stóran baga af þessu ákvæði (frá 8. júlí 1902). Og eg vona að þetta frumv. fái að ganga slysalaust til 2. umr.