14.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1276 í B-deild Alþingistíðinda. (1747)

36. mál, sala á Kjarna

Björn Kristjánsson:

Mér þykir full ástæða til þess að leita upplýsinga um kaupþörf á þessari jörð. Háttv. 2. þm. Eyf. (St. St.) telur söluna með öllu nauðsynjalausa, en í nefndarál. á þskj. 311, einhverju hinu ítarlegasta áliti, sem fram hefur komið á þessu þingi, stendur, að bærinn hafi keypt forkaupsréttinn af ábúandanum fyrir 200 kr. á ári æfilangt. Hér hlýtur að vera að ræða um þörf fyrir bæinn, þar sem hann vill svo mikið til vinna. Eins telur háttv. þm„ að brotinn sé réttur sveitarfélagsins, en í nefndarálitinu er sýnt, að enginn réttur hefir verið brotinn. Það getur vel verið, að sýslun. hafi lagt áherzlu á, að jörðin væri ekki seld, en hún hefir ekkert yfir því að segja. Eg vona, að háttv. þm. kynni sér nefndarálitið vel, áður en til atkv. kemur.