14.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1278 í B-deild Alþingistíðinda. (1750)
36. mál, sala á Kjarna
Magnús Blöndahl:
Frv. það, sem hér liggur fyrir, fer fram á það, að veita landsstjórninni heimild til að selja Akureyrarbæ jörðina Kjarna. Mál þetta finst mér svo réttmætt í alla staði, að eg vænti þess, að hin háttv. deild taki því vel, þrátt fyrir andmæli háttv. 2. þm. Eyf. (St. St.) sem eg ekki veit, hvort getur skoðast sem algerlega óhlutdrægur í þessu máli. Hv. sami þm. talaði mikið um það í ræðu sinni, að Akureyrarbær hefði ekkert með þetta land að gera. En þótt því væri nú í augnablikinu þannig varið, er þar með engan veginn sagt, að hann ekki kunni að þurfa þess með síðar meir. Það er ómögulegt að bera saman landareign Reykjavíkur við þetta land, sem hér um ræðir. Reykjavíkurbær á svo lítið land, að til stökustu vandræða horfir; hann hefði því fyrir löngu átt að kaupa miklu fleiri nærliggjandi jarðir, en hann hefir gert.
Þá hefir því verið slegið fram, að ekki bæri að selja jörðina, vegna þess að hún yrði kannske einhverntíma notuð fyrir skóla.
Ekki veit eg til að í ráði sé að stofna þar neinn skóla, en þó svo færi að einhverjum nýjum skóla yrði komið upp norðanlands hygg eg ekki að mundi standa á því, að staður fengist undir hann.
Þá þótti hv. 1. þm. N.-Múl. (J. J.) ósamkvæmni í því, að þeir, sem vildu styðja landbúnaðinn, skyldu vilja selja jarðir og leggja þær undir kaupstaðina.
En veit hinn h. þm. ekki það, að einmitt skilyrðið fyrir þroska og framtíð bæjanna er það, að þeir hafi nægilegt landrými til eignar og umráða, og þess utan mun land það, sem bæirnir eiga í kringum sig, verða miklu fyr ræktað upp með því móti og mætti í því efni benda á holtin og mýrarnar hér við höfuðstaðinn.
Eg er töluvert kunnugur á Akureyri, þó langt sé að vísu síðan eg hefi verið þar, og mér er það fullljóst, að eðlilegt er, þótt bærinn vilji tryggja sér nægt land í framtíðinni.
Eg vænti fastlega, að háttv. 2. þm. Eyf. (St. St.) sjái, að hér er ekki um neina ósanngirni að ræða, ef hann hefir kynt sér nefndarálitið.
Eg vil því leyfa mér að mæla hið bezta fram með þessu frumv. og vona það komist klakklaust gegn um hina h. deild.