14.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1279 í B-deild Alþingistíðinda. (1751)
36. mál, sala á Kjarna
Hannes Hafstein:
Eg stend upp að eins til þess að segja örfá orð fyrir hönd háttv. samþm. míns (St. St.), af því hann er »dauður« og forseti vill ekki leyfa honum að tala oftar.
Ef svo er, sem hv. 2. þm. Rvk. (M. Bl.) sagði, að það mundi geta rekið að því einhverntíma í framtíðinni, að bærinn hefði gott af því að tryggja sér meira land, en hann hefir nú, en þar í liggur, að þörfin sé ekki enn orðin brýn, ekki nútíðarþörf, sem úr þurfi að bæta. En hversvegna getur Akureyri þá ekki beðið með þessa málaleitun, þangað til þörfin er komin? Sé engin hætta á því að taka þurfi jörðina til almenningsnota fyrir sýslufélagið eða hreppinn, þá gengur hún ekki bænum úr greipum, því sýslunefnd er á móti því, að hún verði seld ábúanda.
Ástæðan fyrir því að eg hefi verið á móti þessu frv. er ekki sú, að eg vilji ekki unna Akureyri als góðs, heldur erum við þm. Eyf. móti frv., af því það er sannfæring okkar, að ekki sé rétt að fara hér að nauðsynjalausu þvert á móti vilja sýslunefndar og sveitarfélags og allra hreppsbúa. Við sjáum ekki nauðsynina á slíkri ráðstöfun. Þó að kaupstaðurinn gæti grætt á kaupunum með því að selja jörðina aftur eða að stykkja hana út, þá væri það að vísu gott fyrir gjaldendur þar, en ekki er þó hægt að segja, að almenningsheill heimti, að landið leggi Kjarna fram í því skyni.
Okkur þm. Eyf. barst ítarlegt bréf, þar sem allar ástæður eru raktar röksamlega fyrir því, að sveitin teldi sér óhagkvæmt og hættulegt, að Akureyri fengi Kjarnaland til umráða í hreppnum; þetta bréf var lagt hér fram á lestrarsalnum ásamt öðrum skjölum tilheyrandi málinu, en mér til mikillar undrunar sé eg, að það er horfið; þar var að ending sú ósk upp borin, að vilji þingið gera jörðina fala, þá láti það hreppinn njóta forkaupsréttar að henni í samræmi við forkaupsrétt leiguliða o. fl.