16.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1282 í B-deild Alþingistíðinda. (1754)

36. mál, sala á Kjarna

Björn Sigfússon:

Mér finst ástæða að geta þess, að eg hefi reynt að kynna mér þetta mál allítarlega, síðan það var hér síðast til umræðu. Eg hefi meðal annars átt tal við kunnugan mann úr Eyjafirði, og hefi leitað álits hans og annara um þetta mál. Hans skoðun var lík minni í þessu efni; hann bjóst við því, að sala jarðarinnar myndi leiða til þess, að landið yrði fyr og betur ræktað en ella. Og eg hefi alt af litið svo á, að við þjóðjarðasölu væri það aðalatriðið, að jarðirnar yrðu sem bezt ræktaðar. Þess vegna hallast eg að því, að Akureyri fái þessa jörð keypta, því að þá mun bærinn — sem er mjög áhugasamur í þeim efnum — verja miklu fé til þess að rækta jörðina. Þar í liggur aðalgróðinn við söluna.

Ennfremur fékk eg að vita, að því færi fjarri að þetta gæti talist til skaða Hrafnagilshreppi; það mundi öllu heldur verða hreppnum til hagnaðar, það hlyti að auka tekjur hans, þar sem notendur jarðarinnar að sjálfsögðu bæru útgjöld (útsvar) í Hrafnagilshreppi.

Mér fanst ástæða til að skýra frá þessu hér, af því eg treysti því, að mér sé rétt skýrt frá málavöxtum, og maður þessi hefði fremur haft ástæðu til að draga taum Hrafnagilshrepps. Eg hefi því styrkst í þeirri skoðun, að rétt sé að selja jörðina.