16.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1285 í B-deild Alþingistíðinda. (1757)
36. mál, sala á Kjarna
Jón Magnússon:
Eg hefi heyrt sagt, að búið væri að gera þetta að flokksmáli; en það get eg sagt að hafi h. meiri hluti gert þetta að flokksmáli, þá er ástæða til þess að minni hlutinn geri það að flokksmáli, því þess ber vel að gæta, að meiri hlutinn ber ábyrgðina á því sem samþ. er, en minni hlutinn ekki og þess vegna verður meiri hlutinn að fara varlegar í það að gera mál að flokksmálum, heldur en minni hlutinn, en minni hlutinn þarf aftur á móti als ekki að fara varlega í því efni. Það er þessi mikli munur, að minni hlutinn er ábyrgðarlaus, en meiri hlutinn hefir ábyrgðina á því sem samþ. er hér á þinginu. Í annan stað er það mjög óheppilegt að gera það að flokksmálum, sem alls ekki má flokksmál vera.