16.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1287 í B-deild Alþingistíðinda. (1760)

36. mál, sala á Kjarna

Skúli Thoroddsen:

Háttv. þm. Vestm. (J. M.) sagði það gersamlega ósatt, að þetta væri flokksmál hjá okkur meiri hl. mönnum. Gæti hann að sér að höggva ekki of nærri sér og sínum flokksbræðrum í þessu efni. Eg veit ekki betur en háttv. minni hl. hafi gert þetta að flokksmáli í Ed., og fullkomið útlit fyrir, að svo ætli einnig að fara hér.

Háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) sagði, að jörð ein lægi á milli Nausta og Kjarna. Þetta hefir hann hlotið að segja af vanþekkingu, þótt ótrúlegt megi virðast. Það er alkunna, að þjóðjörðin Kjarni liggur að Eyjafjarðarbrautinni, og á því Akureyrarbær sérlega hægt með að nota hana, enda er þeim mikið áhugamál að fá hana keypta nú þegar.

Á afarfjölmennum þingmálafundi í Akureyrarkaupstað var það samþykt með öllum atkvæðum gegn 4, að freista þess að fá jörðina keypta. Að vísu var einn af þessum fjórum, er greiddi atkv. á móti, eitt af landsins elztu etazráðum. Get þess að eins til skýringar.

Eg sé ekki ástæðu til að taka til greina ósk háttv. þm. Suður-Þingeyinga (P. J.) um frestun málsins.

Þyki mönnum jörðin of lágt metin, er hægt að gera breyt.till. um það við 3. umr.