30.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1310 í B-deild Alþingistíðinda. (1789)

41. mál, bankavaxtabréf

Framsögumaður (Bjarni Jónsson):

Menn muna að síðast þegar mál þetta var á ferðinni hér í deildinni, bað eg um að það væri tekið út af dagskrá, vegna þess að frétst hafði, að bréf þau, er átt var við, væru seld, því ekki var hægt annað að ráða af hraðskeyti því, sem sent var hingað, en að svo væri, enda þótt fullkomin vissa sé ekki fyrir hendi enn þá, Þess vegna hefir meiri hluti nefndarinnar komið með frumv. aftur, þó með þeirri breytingu, að heimild sé að kaupa önnur bréf, ef þessi, sem fyrst var átt við, eru seld. Það getur vel verið, að sumir segi, að óþarfi sé að veita landssjóði heimild til þess, því að landssjóður beri ábyrgð á bankanum og því geti bankinn eins fengið lán með sömu tryggingu. En nú stendur svo á, að stjórnin á einmitt víst lán, en það á mér vitanlega bankinn ekki, ef hann þarf á að halda, og þess vegna viljum við að stjórninni veitist heimild til að styrkja bankann á þennan hátt— ef þörf krefur. Lánið er til 30 ára, en bréfin verða innleyst á skemmri tíma, svo hér er ekkert að óttast.

Þetta væri þó ekki svo afarnauðsynlegt, ef bankinn sjálfur gæti fengið lán upp á sömu kjör og stjórnin. En þar erum við svo óheppnir, að bankar okkar hafa ekki nægilegt lánstraust — og þótt slíkt sé að ástæðulausu, þá kemur það út á eitt í afleiðingunum.