03.05.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1324 í B-deild Alþingistíðinda. (1810)

41. mál, bankavaxtabréf

Hannes Hafstein:

Eg get ekki skilið, hvernig þetta frumv. ætti að bæta fyrir hinu, þótt eg þekki ekki, hvað gerist bak við tjöldin. Og ef beðið er úrslita þessa frumv. í Ed., þá get eg ímyndað mér, að það sé einmitt vegna þess, að deildin ætli sér að fella hitt frumv., ef þetta nær fram að ganga, annars ekki.