22.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1360 í B-deild Alþingistíðinda. (1857)

92. mál, hlunnindi bókasafna

Jón Magnússon:

Eg vil leyfa mér að benda háttv. þingdeild á það, að þetta frumv. er ekki rétt orðað.

Eftir orðunum virðist það vera ákveðið, að bókasafn Ísafjarðar skuli teljast eitt af bókasöfnum landsins, en ekki er fremur ástæða til þess að þetta bókasafn nefnist því nafni fremur en t. d. sýslubókasöfn. Og það er þó víst ekki tilætlun þingsins að gera sýslubókasöfn, eða jafnvel þau bókasöfn, er áður voru fyrir heil ömt, öll að landsbókasöfnum.

Það má nú að vísu segja, að ekki sé það teljandi eftir prentsmiðjunum eða bóka-útgefendum að láta nú 10. eintakið af hendi í viðbót við þau 9, sem nú er skylt að láta bókasöfnum í té ókeypis, en þetta gæti þó orðið býsna þungur skattur á prentsmiðjum, ef fleiri líkar kröfur bættust við. Þessi sérstaki skattur, sem lagður er á þessa einu atvinnugrein, prentiðnina, er þegar orðinn allþungbær og vil eg því leyfa mér, að skjóta því til hv. þingdeildar, að varlega sé farandi í að bæta nú við, eða þyngja þennan skatt, sem í rauninni er als ekki sanngjarn eða réttlátur. Hvers vegna er slíkur skattur einmitt lagður á þessa einu atvinnugrein? Það stafar eflaust af því, að prentleyfið þótti fyr meir svo mikil einkaréttindi, að ástæða þótti til að leggja sérstaklega skatt á þá atvinnu.

Eg hefi talið rétt, að benda á þetta, til þess að vekja athygli á því, að hér er farið fram á allviðsjála braut. Ef t. d. Eyrbekkingar færu þess á leit, að bókasafni þeirra yrði sýnd þessi sama ívilnun, þá væri eiginlega ómögulegt að neita þeim fremur um það. Sama mætti segja um Hafnfirðinga o. s. frv.

Skal eg svo ekki að öðru leyti fjölyrða um þetta mál, en vil að eins enn láta þess getið, að ástæða virðist til, er bókasöfnin eru orðin svo mörg, að takmarka nokkuð þá skyldu, er prentsmiðjurnar hafa nú til að láta af hendi alt sem prentað er, hverju nafni sem nefnist, hverja auglýsingu, hvert reikningsform o. s. frv. Fyrir bókasöfnin út um landið er ekkert gagn að því að fá annað en rit, og ætti því að mega takmarka þennan rétt gagnvart öllum öðrum bókasöfnum í landinu en landsbókasafninu — og ef til vill konunglega bókasafninu í Kaupmannahöfn.