22.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1361 í B-deild Alþingistíðinda. (1858)

92. mál, hlunnindi bókasafna

Ráðherrann (B. J.):

Sem atvinnurekandi um langa hríð í þessari grein gæti eg gefið upplýsingar um það, hvað rétt er og rangt um þennan skatt. Markmikið var í upphafi með þessum skatti, að varðveita bækur frá glötun. Fyrst var 2 söfnum eða 3 þó veittur þessi réttur. Síðar hafa kvíarnar verið færðar út, og farið hefir verið út fyrir takmörk þessarar reglu. Nú er skatturinn lagður á til þess að gera landsmönnum hægara fyrir með að ná í bækur til lestrar. Þessi skattur er nú orðinn alltilfinnanlegur, því að útgefendur missa nú svo marga kaupendur, þeirra, sem svo eru nálægt söfnunum, að þeir geti notað þau, sem nemur tölu lesenda. Þetta er ósanngjarnt. En þó býst eg ekki við, að hlýða þætti nú að nema þessi fyrirmæli úr lögum. En annað mætti gera. Það mætti lina svo á fyrirmælunum, að útgefendur þyrftu ekki að láta söfnunum bækurnar í té, fyr en tveim árum eftir útgáfu þeirra. Þá væri varðveizlutilganginum náð, án þess þó, að traðkað væri rétti útgefanda. Enn er það og með öllu óþarft, svo sem virðulegur þm. Vestm. (J. M.) tók fram, að senda hvern prentaðan snepil til allra safna landsins. Það virðist nægja að senda landsbókasafninu einu alt, sem prentað er, til varðveizlu.

Eg ímynda mér, að þm. telji mig ekki segja þetta í eiginna hagsmuna skyni, því að eg er ekki lengur útgefandi.