05.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1366 í B-deild Alþingistíðinda. (1868)
50. mál, kirknafé
Jón Jónsson (S.-Múl.):
Mér fanst háttv. umboðsmaður ráðherrans hálfvegis gefa í skyn að sá sparisjóður, er sjóður Munkaþverárkirkju er ávaxtaður í, mundi ekki vera nægilega tryggur, svo að féð gæti verið í hættu. En eg get gefið þá upplýsing, að þessi sparisjóður, sem Kaupfélag Eyfirðinga hefir stofnað hefir allar venjulegar sparisjóðstryggingar í bezta lagi, og að sjóði kirkjunnar er víst engin hætta búin þar. Og eg skal bæta því við, að það er nokkuð hart fyrir söfnuði, sem tekið hafa að sér kirkjur, að mega ekki ávaxta sjóð kirkjunnar á þeim stað, þar sem hann gefur beztan ávöxt og vex skjótast, ef sá staður er fulltryggur. Ekki munu kirkjurnar verða ofveglegar fyrst um sinn, þótt fé þeirra sé haldið sem bezt til haga.