26.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1371 í B-deild Alþingistíðinda. (1877)

50. mál, kirknafé

Flutningsmaður (Stefán Stefánsson):

Eg sé það á nefndarálitinu, að frumv. hefir ekki fundið náð fyrir augum hv. nefndar, væntanlega af því, að henni hefir þótt stefna þess að einhverju leyti varhugaverð, þótt bæði mér sem flutnm. og ýmsum fleiri háttv. þingm. sýnist stefna þess mjög sanngjörn og eðlileg.

En af því að eg fékk veður af því, að frumv. mundi mæta þessum byr hjá nefndinni, áður en álit hennar kom fram, þá hefi eg komið fram með breyt.till. við frumv. á þskj. 575, sem fer fram á það, að Möðruvallaklausturssöfnuður fái yfirráð kirkjusjóðs síns. Þessi breyt.till. er fram komin af sérstökum ástæðum. Svo stendur á, eins og eg raunar tók fram við 1. umr., að Möðruvallaklausturssöfnuður hefir verið krafinn um þennan kirkjusjóð, er honum var afhentur fyrir nokkurum árum, samtímis því er hann tók við kirkjunni af hendi landssjóðs. Ár eftir ár var það borið upp á safnaðarfundum og þess óskað af hálfu hins opinbera, að söfnuðurinn tæki að sér kirkjuna og fjárhald hennar, en hann neitaði hvað eftir annað, þangað til hann loks gerði það, með því ákveðna skilyrði, er jafnframt var tekið fram í fundargerðinni, að henni fylgdi 1000 kr. álag, sem yrði svo ávaxtað ásamt árstekjum hennar í sparisjóði Arnarneshrepps.

Þessi upphæð var þá lögð í sparisjóð hreppsins, og er nú orðin með árstekjum og vöxtum allmikið á 6. þús. kr. Til sönnunar því, að fé kirkjunnar sé óhult í sparisjóðnum, skal eg geta þess, að árleg umsetning hans er 21—25 þús. kr. og á varasjóð, að því er mig minnir 1200 kr., en ábyrgðarmenn sjóðsins eru efnamestu bændur sveitarinnar, 12 að tölu. Þegar því þessi krafa, að sjóðurinn yrði afhentur í hinn almenna kirknasjóð, kom frá biskupi, þá litu ýmsir svo á, sem hér væri verið að svíkjast að söfnuðinum, þar sem fyrst er gengið að skilyrðinu umyrðalaust, en svo þegar kirkjan er komin í ábyrgð og umsjá safnaðarins, þá að taka aftur af honum sjóðinn.

Eg vona því, að þótt hin hv. nefnd geti ekki aðhylst frumv., muni hún sýna svo mikla sanngirni að sinna br.till., enda virðist mér hún hallast að þeirri breytingu í nefndaráliti sínu. — Eg skal svo ekki orðlengja frekara um þetta mál að sinni, en vona, að hin háttv. þingd. skilji, hversu sanngjarnt þetta er, hvernig sem á það er litið og samþ. till.