20.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í B-deild Alþingistíðinda. (188)
7. mál, háskóli
Stefán Stefánsson (6. kgk.):
Eg gæti eiginlega fallið frá orðinu, því að háttv. 4. kgk. þm. hefir tekið fram mest af því, sem eg ætlaði að segja. Háttv. þm. Ísf. hélt því fram, að fé væri ekki fyrir hendi til þess að koma háskólanum á fót, og nefndin líti auðsjáanlega svo á, úr því hún ætlaðist ekki til að hann yrði stofnaður, fyr en fé væri veitt til þess á fjárlögum. Eg var ekki með þessu í nefndinni. Eg var þvert á móti á þeirri skoðun, að næg efni væru fyrir hendi. Það er ljóslega sýnt fram á það í athugasemdunum við frumv., að kostnaðurinn sem af því hlytist er ekki nema hér um bil 20,000 kr. Eg leit svo á, að ef ekki væri ráð á að veita þetta fé til svo mikilvægrar þjóðstofnunar, þá hefðum vér heldur ekki ráð á að lifa sem sérstök þjóð. Það eitt nægir til þess að sýna þörfina á háskóla, að vér þurfum nú að miklu leyti að sækja embættismönnum vorum mentun til annara landa eða háskóla.
Eg vil í sambandi við þann kostnað sem hér er um að ræða benda mönnum á alt það fé, sem fer út úr landinu með þeim mönnum, sem stunda nám í öðrum löndum. Það er stórfé á hverju ári. En þetta yrði þó ekki nema brot af hagnaðinum, sem hlytist af svona stofnun. Háskóli hlýtur að efla alt andlegt líf í landinu. Og þess mundu sjást merki strax eftir nokkur ár. Hann yrði vörn gegn miður hollum útlendum áhrifum, ekki sízt dönskum, sem vitanlega eru mikil og mjög varhugaverð að ýmsu leyti. Það má auðvitað segja, að embættismannaskólarnir geri það nú, en þó ekki nema að nokkru leyti, því meðan ekki er búið að koma þeim í betra horf, sýnist mér varhugavert að binda embættaveitingar hér á landi því skilyrði, að menn hafi gengið á þessar stofnanir, en þetta væri sjálfsagt að gjöra þegar háskólinn væri kominn í viðunandi horf.
Eg skil ekki hvernig menn geta lagt það til, að fresta þessu máli núna, þegar kröfur og raddir um sjálfstæði eru svo háværar, þegar sjálfstæði landsins er orðið slíkt hjartansmál þjóðarinnar, og þegar stofnaður er fjölmennur þingflokkur utan um sjálfstæðishugsjónina.
Eg vildi ekki kljúfa nefndina, en það hefir alt af verið mín skoðun, að þessi stofnun ætti að komast á fót nú þegar. Það er líklegt, að nokkrar breytingar verði á þingi til næsta þings, og þess vegna vil eg ekki að því sé frestað að samþykkja þessi lög.
Háttv. þm. Ísf. talaði mikið um fjárhag landsins og hafði miklar áhyggjur út af honum. Eg játa fullkomlega, að það er margt áhyggjuefnið hvað fjárhaginn snertir. Eg get ekki litið svo á, að fjárhagurinn sé svo bágborinn, að okkur sé ofvaxið að koma þessari stofnun á fót, sem hlýtur að verða lyftistöng andlegra og verklegra framfara þessarar þjóðar og skjól og vörn íslenzks þjóðernis á komandi tíð. Eg legg þess vegna áherzlu á, að frumv. verði samþykt á þessu þingi, og vona að þessi deild sjái sóma sinn með því að samþykkja það.