30.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1386 í B-deild Alþingistíðinda. (1896)
53. mál, sóknargjöld
Björn Sigfússon:
Eg er alveg samdóma þeirri grundvallarhugsun í frv., að gjöld til prests og kirkju eigi eftir eðli sínu að vera persónuleg gjöld, en þó er eg ekki ánægður með frumv. eins og það er. Eg hefi of seint tekið eftir breyt.till. minni hlutans, væri hún víðtækari, þá væri eg henni samdóma. Eg get ekki álitið það rétt eða heppilegt, að menn geti losað sig undan gjaldinu sem slíku, en mér finst, að það mætti koma gjaldinu þann veg fyrir, að það væri sanngjarnt gjald án þess þó að vera borgað til kirkjufélagsins, t. d. ef þeir, sem ekki eru í þjóðkirkjunni væru látnir greiða þetta gjald til barnaskóla eða til fræðsluhéraðsins, sem þeir eru í.
Ef svo væri, fellur freistingin í burtu að losa sig undan gjaldinu með því að segja sig úr kirkjufélaginu sökum þess. Eg er viss um að ýmsir, sem ekki fella sig við að borga til prests eða kirkjunnar, mundu miklu fúslegar vilja borga sama gjald til barnafræðslu. Eg vildi gjarnan sameina mig við h. flutningsmenn breyt.till. við 3. umr. og laga hana í þessa átt.