30.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1391 í B-deild Alþingistíðinda. (1898)

53. mál, sóknargjöld

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Það hlýtur að vera bygt á hraparlegum misskilningi, að br.till. á þskj. 701 sé komin fram eftir tilmælum frá mér. Eg hefi engan hlut átt þar að máli. Að mínu áliti gerir hún lögin enn þá margfalt verri.

Þessi breyting er að eins til að gerspilla frumv.

Á breyt.till. 708 og 713 skal eg ekki minnast. Það eru að eins orðabreytingar. Aftur á móti vildi eg fara nokkrum orðum um br.till. á þskj. 707. Hún fer fram á, að undanskilja frá þessu gjaldi utanþjóðkirkjumenn, sem greiða minst 2 kr. til eflingar og stuðnings trú þeirra með fastri skipulagsskrá, sem ráðherra staðfestir, enda sé sjóðurinn undir stjórn þeirra manna, er ráðherra tekur gilda. Undanþegnir þessu gjaldi eru líka utanþjóðkirkjumenn, sem greiða minst 2 kr. til sérstaks fræðslusjóðs fátækra barna í sínum hreppi, enda hafi sá sjóður stjórn og skipulagsskrá staðfesta af ráðherra. Þetta er ekki gert til þess að létta á hreppsfélögunum, heldur til að styrkja aukreitis fátæk börn til fræðslu.

Eg vona, að háttv. deild fallist á þessar till. og samþ. frumv. þannig breytt.