19.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 129 í B-deild Alþingistíðinda. (19)

1. mál, fjárlög 1910 og 1911

Stefán Stefánsson:

Það eru hvorki margar né stórvægilegar breytingar, sem eg hefi farið fram á. Þær eru að eins tvær og fara samlagðar fram á um 500 kr. fjárframlag.

Fyrri br.till. er um 200 kr. styrk til Leikfélags Akureyrar. Háttv. þingdm. eru svo smekkvísir og greindir menn, að mér er engin þörf á að halda langa ræðu um þýðing leiklistarinnar. Þetta félag, sem hér ræðir um, hefir starfað um nokkur ár á Akureyri, sýnt þar mörg leikrit og farist vel. Good-templarar hafa bygt þar hús, og er í því stærsti leiksalur, sem til er á Íslandi. Væri illa farið, ef engir gætu eða fengjust til að halda þar uppi leikum. Akureyri er lítill og fátækur bær, svo að tekjur leikfélagsins hafa orðið litlar og ekki hrokkið nándar nærri fyrir kostnaði. Eg skal geta þess til dæmis, að nýlega hefir félagið kostað 400 kr. til þess að láta gera leiktjöld í »Gísla Súrsson«, sem kvað vera ágætt leikrit. Tjöld þessi eru máluð erlendis og eru forkunnar fögur.

Leikfélagi Reykjavíkur, sem að vísu hefir gjört mikið gagn, er veittur styrkur úr landsjóði til þess að halda uppi leikum hér í bænum, og virðist því ekki úr vegi, að veita sams konar félagi, sem líka hefir gert mikið gagn, í næststærsta bæ landsins svona lítinn styrk, sem hér er farið fram á. Hins vegar er löggjafarvaldinu fengin trygging fyrir því, að hér sé ekki um »húmbug« að ræða, með því ákvæði, að styrkveitingin sé bundin því skilyrði, að félagið sé líka styrkt af Akureyrarbæ. Vilji bæjarstjórn Akureyrar ekki styrkja félagið, þá fellur styrkurinn niður.

Hin brtill. mín á sama þskj. er um að veittar sé 300 kr. til grasgarðs eða grasfræðisgarðs hér í Reykjavík. Þessi garður var tekinn á frv. stjórnarinnar og átti að styrkja hann með 800 kr. Nd. feldi þennan lið burt, en nú hefi eg leyft mér að vekja máls á þessu á ný með þessari litlu upphæð. Það liggur við, að eg skammist mín fyrir að biðja um svona lítið, en eg lít þó svo á, að hægt sé að gjöra nokkurt gagn með þessari upphæð. Þeir háttv. þingmenn, sem greiddu atkv. um þetta mál í Nd., vissu ekki hvað grasgarður var. En grasgarður er sama sem bótanískur garður. Slíkir garðar tíðkast um allan heim og líka á Norðurlöndum. T. d. eru bótanískir garðar bæði í Höfn, Stokkhólmi og Kristjaníu, þar sem ekki að eins vaxa allar helztu innlendar plöntutegundir, heldur fjöldinn allur af útlendum plöntum; jafnvel trópískar jurtir vaxa í jurtabaðstofum og vermireitum. Þessir grasgarðar hafa mikla þýðing fyrir mentun þjóðarinnar; kennarar ganga þar um með lærisveinum sínum og sýna þeim það, sem í garðinum vex. Hér geta lærisveinarnir skoðað í krók og kring þær plöntur, sem þeir heyrðu lýst í kenslustundunum. Önnur hlið á þessu máli er sú vísindalega, sú að grasafræðingar geti athugað líf og vöxt og breytingar á plöntunni, hvernig fram koma nýjar tegundir, afbrigði o. s. frv. Auk þess sem þetta hefir stórmikla vísindalega þýðing, þá hefir það líka praktiska þýðing, að því er kemur til rannsókna og tilrauna með nytjurtir. Eg vona að þetta nægi til þess að gera háttv. þingdm. ljóst, um hvað hér er að ræða, og eg vona lika, að þeir finni sig eigi móðgaða, þó eg hafi gert ráð fyrir, að þeim væri þetta eigi kunnugt. Eg skal svo að eins geta þess, að Bjarni Sæmundsson kennari telur mjög mikið gagn að slíkum garði fyrir skólann, og yfirleitt má auðvitað búast við, að þýðing garðsins fyrir skólana verði meiri en sú vísindalega. Eg vil svo vona, að h. deild lofi þessari litlu brtill. að smjúga í gegn.

Eg vildi svo að eins lítillega minnast á brt. nefndarinnar. Það var helzt viðvíkjandi Því, að nefndin leggur til, að styrkurinn til Guðm. Bárðarsonar sé feldur burt. Eg skal játa það, að mér er mjög sárt um þessa fjárveitingu, því að eg er sannfærður um, að það kemur enginn bitlingur að gagni, ef þessi gerir það ekki. Þessi maður hefir verið hneigður fyrir þessa vísindagrein siðan hann var dá lítill drengur. Þegar eg kom að Kollafjarðarnesi, kom hann á móti mér með fult fangið af blómum, sem hann hafði safnað til þess að fá að vita nöfnin á þeim. Það liggur fyrir þinginu mjög góður vitnisburður frá Bjarna Sæmundssyni um manninn. Hann hafði ætlað sér að lesa náttúrufræði, en heilsan bilaði og hann varð að fara upp í sveit og fara að búa. En samt hefir hann verið allur í náttúruvísindum. Fyrst gaf hann sig við grasafræði, en síðan hefir hann lagt mikla stund á jarðfræði. Og nú er hann kominn svo langt í rannsóknum sínum, að það má vera að þær geri hann heimsfrægan. Hann hefir ágæt meðmæli frá Þorvaldi prófessor Thoroddsen og dr. Helga Pjeturss, og í fjórða lagi get eg gefið honum mín beztu meðmæli. Eg hefi þekt hann í mörg ár. Hann var einu sinni hjá mér sumartíma við grasafræðisathuganir. Eg skal með leyfi háttv. forseta lesa upp kafla úr því, sem Þorvaldur Thoroddsen hefir sagt um þennan unga vísindamann.1

Hann leggur áherzlu á að geta komist til útlanda til þess að afla sér þekkingar á jarðfræðisrannsóknum, og það væri illa farið, ef honum væri neitað um lítilfjörlegan styrk til þess. Menn tala stundum um dilka, sem þessi og þessi fjárveiting kunni að draga á eftir sér. Því er ekki til að dreifa hér, þessi fjárveiting dregur engan dilk á eftir sér, annan en vísan árangur fyrir vísindi þessa lands. Og það má vel vænta þess, að árangurinn verði mikill, því að þetta er enginn nýgræðingur, sem á að fara að hlynna að. Eða þó öllu fremur, það er nýgræðingur, en svo óvanalega þroskalegur, að það ætti að vera ánægja að hlúa að honum, til þess að sem mest geti orðið úr honum. Mér heyrðist háttv. framsögumaður gera heldur lítið úr rannsóknum þessa manns og þeim árangri, sem styrkveitingin gæti haft fyrir landið. Eg veit að þetta muni stafa af því, að að hann þekkir ekkert til mannsins. Eg vona að hann taki betur í málið næst, því að hann er of vitur maður og sanngjarn til þess að kunna ekki að meta þetta, þegar hann er búinn að fá upplýsingar um manninn og málavexti.

Eg vil að eins minnast á breytingartillögu háttv. þm. Skagfirðinga, um styrk til Hólasóknarmanna. Ekki af því, að eg þurfi neinu við að bæta það, sem háttv. þm. sagði, en af því að eg er líklega sá eini hér í deildinni, fyrir utan flutningsm., sem hefi séð þetta mannvirki, þá vil eg að eins lýsa því yfir, að eg mæli eindregið með þessum styrk. Það er skylt landinu að hlaupa undir bagga með Hólasóknarmönnum, sem hafa sýnt svo mikla ræktarsemi við þessa kirkju, sem er merkilegasta hús landsins. Ekki sízt þegar þess er gætt, að landið á bæði kirkjuna og jörðina.

Það var í dag vikið til mín fyrirspurn út af fjárbeiðni Ungmennafélagsins. Mér er vel við þetta félag, eg álít að það hafi stórt verkefni hér á landi, og eg vildi helzt ekkert ilt um það segja. En satt að segja varð eg hálf hissa, þegar eg sá að neðri deild samþykti orðalaust 4000 kr. fjárveitingu til félagsins. Og í hvaða tilgangi? Til þess að planta skóg! Mér þótti þetta mjög undarleg fjárveiting, einmitt þegar nýbúið er að koma upp heilli stofnun hér í landinu til þess að annast skógræktarstörf og búið er að færa skógræktarstjórnina í »system«. Veit nokkur maður til þess, að félagsmenn í Ungmennafélaginu kunni að planta skóg? Eg veit ekki til þess. Enda vakir það varla fyrir þeim, að planta sjálfir; þeir munu miklu fremur ætla að vekja áhuga á skógræktarmálinu meðal þjóðarinnar. Þetta er hlutverk félagsins; það er aðallega vakningarfélag. Það á að glæða ræktarsemi við landið í þessum og öðrum efnum. Því væri betra að orða fjárveitinguna eitthvað á þessa leið. En ef þingið vill veita fé til skógræktar, þá á það auðvitað að ganga í gegnum skógræktarstjórnina. — Ungmennafélagið hefir enga kunnáttu í þeim efnum, eins og sýnir sig líka strax, því að eg hefi heyrt, að félagsmenn hafi hugsað sér að flytja trjáplöntur utanlands frá. Þetta er óheppileg aðferð, eins og skiljanlegt er, enda hefir reynslan þegar sýnt það, að slíkar tilraunir mishepnast nálega undantekningarlaust. En nú höfum við gróðrarstíur, eina norðanlands og aðra hér syðra. Þar eru plöntur aldar upp, og þegar þær eru orðnar hæfilega þroskaðar, má flytja þær á ýmsa aðra staði. Þar má fá plönturnar, og eru miklu meiri líkur til að þær þrífist, heldur en útlendar plöntur. Því væri það vel hugsað af félögum Ungm.fél., ef þeir tækju þarna plöntur og gróðursettu hver hjá sínum bæ. En til þess þarf engan styrk.

Það væri nóg að veita félaginu nokkurn styrk til útbreiðslu félagsins í landinu. Eg vil gjarnan hjálpa því svo, að það geti sent t. d. Helga Valtýsson eða aðra vel máli farna menn út um landið, til þess að útbreiða félagið og vekja áhuga manna á málum félagsins. Því mun eg greiða atkvæði með breytingartillögu nefndarinnar.

*) Bréfkaflinn hefir ekki verið innfærður í ræðuna. Útg.