20.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 437 í B-deild Alþingistíðinda. (190)

7. mál, háskóli

Jens Pálsson:

Eg ætla það ekki ofmælt, að þetta mál sé eitt hið bezta mál á dagskrá þessarar þjóðar og lands, og það getur ekki komið til nokkurra mála, að láta það sitja á hakanum fyrir ýmsu öðru þýðingarminna. Málið er hugsandi mönnum þjóðarinnar eitt hið hugðnæmasta og dýrmætast allra mála, og er ekki efamál, að það á fram að ganga sem fyrst, verða á undan flestum öðrum framfaramálum, er sinna þarf. Það hefir verið margsýnt fram á það af þjóðarinnar beztu og skörpustu mönnum, hversu það sé óholt fyrir andlegt líf í landinu, að flestir leiti háskólamentunar út úr því, og að þeir námsmenn vorir, sem sækja háskólamentun sína út fyrir landsteinana, skuli allir verða að lenda á einum sama háskóla, sakir hins ríflega nemendastyrks, er þar er á boðstólum.

Þetta er óholt þjóðlífi voru. Og það er furða, að þessi einhliða straumur hins danska vísindalífs og háskólalífs skuli ekki vera búinn að gagnsýra þjóð vora enn meira, en raun hefir þó á orðið.

Það var réttilega tekið fram af háttv. 5. kgk. þm., að innra líf þjóðarinnar væri aðallífskrafturinn, sem héldi uppi því ytra, og að ekkert mundi styrkja betur innra líf þjóðarinnar, heldur en háskóli í landinu. Ennfremur tók háttv. 5. kgk. þm. það fram, að með svona stofnun ykist manngildi og mentagildi í landinu, og eg vil bæta við þjóðfrægð og landsfrægð Íslands; því að í sannleika er það auðmýkjandi og niðurlægjandi fyrir oss Íslendinga, að hugsa til þess, að erlendir menn, er leita sér mentunar í íslenzkum og fornnorrænum fræðum, skuli í því skyni þurfa að leita til háskóla í öðrum löndum, af því að vísindalega kenslu í þessum fræðigreinum er ekki að fá í þessu landi, sem þó er föðurland allra fornnorrænna og íslenzkra fræða. Meðan svo er, líta aðrar þjóðir smáum augum á íslenzkar bókmentir að fornu og nýju. Eg skal í þessu sambandi minna á, að þegar Danir gerðu hingað stúdentaleiðangurinn um aldamótin síðustu, þá voru margir þeirra þeirrar skoðunar, að Ísland ætti ekki neinar bókmentir. Ef háskóli hefði verið í landinu, þá hefði slíkt ekki komið fyrir.

Eg hélt fram í nefndinni, að réttara væri að taka ekki til um tímann, hvenær háskólinn skyldi taka til starfa, af því að eg áleit, að það væri nokkuð frekt að heimta fé til skólans skilyrðislaust, áður en menn vissu nokkuð um, hvernig fjárhagur landsins yrði næstu árin. Og þar sem þungamiðja fjárveitingarvaldsins er í Nd., þá sýnist mér sjálfsagt og bein kurteisi, að senda málið svo til hennar. Nd. er þá í lófa lagið að gera við frumv. hvað hún vill og breyta aftur til, svo að lögin komi strax í framkvæmd.

Það hefir verið talað um 20 þús. kr. kostnað, en mér dylst þó ekki, að hann muni verða meiri, því að t. d. yrði að veita stúdentum mjög ríflegan námsstyrk til þess að vega á móti þeim stóra styrk, sem þeir fá í Khöfn. Hvað snertir húsabyggingu handa skólanum, þá er mér það hjartfólgin hugsun, að honum verði reist veglegt hús, og hefi eg hugsað mér, að það væri næstum óhugsandi, að koma stofnuninni á fót að öðrum kosti. En þegar eg nú skoða það atriði nánar, þá sýnist mér þó sem það muni vera unt í fyrstu. Hitt tel eg víst, að löggjafarvaldið dragi ekki að koma veglegri háskólabygging upp undir eins og fjárhagur leyfir það með nokkru móti. Málið er svo hjartfólgið allri þjóðinni, að það verður að gera sem bezt við það að öllu leyti.