20.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 441 í B-deild Alþingistíðinda. (193)
7. mál, háskóli
Framsögumaður (Lárus H. Bjarnason):
Eg vil ekki efast um að háttv. þm. Ísf. sé það alvörumál að vilja styðja að stofnun háskólans. Annars hittist svo leiðinlega á, að einmitt þessi aðferð, að fresta og draga á langinn, er oft brúkuð til að eyðileggja góð mál, sem menn þora ekki að ganga í berhögg við. En sem sagt, eg vil ekki bera honum slíkt á brýn.
Háttv. þm. sagði, að við ættum að kosta kapps um að hafa háskólann myndarlegan. Með því skilst mér hann meina, að skólinn verði ekki myndarlegur í þeirri mynd, sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu. En deildirnar verða þær sömu sem nú, að einni viðbættri, og með sömu kenslukröftum; kenslan ætti því ekki að verða lakari, þó deildirnar yrðu sameinaðar og fengju að stjórna sér sjálfar. Ennfremur sagði hann, að við gætum ekki veitt nemendunum eins mikinn styrk og þeir fá í Höfn. Það er rétt. En bæði er það, að hér er hægt að komast af með minna en í Höfn, og svo á ekki að styrkja hvern stúdent, heldur að eins þá sem efnilegir eru. Til námsins hér þarf ekki meiri styrk en stúdentar hafa nú, en aftur legg eg mikla áherzlu á styrk til utanfara. Honum álít eg væri sérstaklega vel varið, miklu betur en þeim styrk, sem stúdentar hafa nú í Höfn. En eg álít ekki að við þyrftum að veita mikið fé úr landsjóði til utanlandsfara, þar eð við höfum sjóð Hannesar Árnasonar, sem nú er orðinn mjög álitlegur sjóður, 60 þús. kr., og gefur því 3000 kr. í rentu árlega. Að vísu eru styrkveitingar úr þessum sjóði nú takmarkaðar við eitt fag, heimspekina, en því mætti og ætti að breyta, þannig að þær næði til námsmanna í hverju fagi sem er. Þingið hefir að vísu ekki leyfi til að gera þessa breytingu á reglunum um notkun sjóðsins, en það getur væntanlega fengið ráðherra sinn til að gera hana hvenær sem vill. Í útlöndum er það stundum gjört að breyta slíku. Hannes Árnason var mentavinur, og eg efast ekki um það, að hann mundi verða fyrsti hvatamaður þess, ef hann lifði nú, og sæi hve féð er mikið og þörfin rík. (Sig. Stefánsson: Hann var heldur ekki amtsráð). Háttv. þm. mun eiga við ráðstöfun amtsráðsins á bókasafninu í Stykkishólmi, en þar skjátlast herra þingm. Sú ráðstöfun var í alla staði lögmæt. Ef til vill þekkir hv. þm. einhverja sérstaka leið til sambands við látna menn; ef svo er, mætti nota hana til að leita samþykkis H. A. til breytingar á stofnskránni.
Háttv. þm. sagði, að ekkert væri unnið með því, að samþykkja frumvarpið nú. En það vinst einmitt mikið með því. Vilji þingið 1911 leggja fé til háskólastofnunar, getur það gert það með einfaldri fjárveiting. En ef frumv. er drepið nú, væri það sama sem að eyðileggja málið; að minsta kosti ætti það þá miklu lengra í land. En ef til vill er það einmitt vilji hv. þingmanns.
Eg vona að háttv. deild samþykki frumvarpið, og að Nd. gjöri því síðan sömu skil.