20.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1421 í B-deild Alþingistíðinda. (1955)

93. mál, löggilding Viðey

Jón Þorkelsson:

Hinum háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) er enn ekki kapplaust í kotrunni með að halda í löggilding Viðeyjar, sem nú kemur hér ólöglega fram svo sem ljós í rófunni á öðru frumv.

Þm. veit það vel, að búið var að fella hér í deildinni á þessu þingi frv. um þetta efni, og að efni þessa felda frumv. er nú komið hér inn sem viðbót í frumv. það, sem hér liggur fyrir á alveg löglausan hátt, og að þessu verður ekki nein bót mælt.

En þó nú þessu sé svo varið, gæti þó verið umtalsmál, hvort ekki kynni að vera út af fyrir sig nauðsyn á þessari löggildingu. En ekki tekur þá betra við. Á síðasta þingi var líka felt frumv. um löggilding þessa staðar, sem alveg ástæðu- og nauðsynjalausa. Og í sambandi við það vil eg minna háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) á orð manns, sem hann sjálfsagt metur mikils, en það er Tryggva bankastjóra Gunnarssonar. Taldi hann þá, að það væri ekki verið að löggilda þennan stað í þágu eða þarfir landsmanna, heldur útlendinga, og þótti þinginu þá engin ástæða til að verða við því. Þetta hefir ekki breytst síðan, og nauðsynin er ekki meiri nú en þá.

Hinn háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) gat þess, að útlend skip og skip yfir höfuð kæmust hjá því að gjalda hafnartoll, ef Viðey yrði ekki löggilt, og taldi hann það löggildingunni til meðmæla. Að vísu er það svo, að þau skip, sem til þeirrar hafnar færu losuðust við hafnartoll í Reykjavík. En getur þm. ábyrgst, að ekki verði einmitt lagður á hafnartollur í Viðey, þegar búið er að löggilda hana? Enn sagði þm., ef neitað væri um löggildingu, þá mundi það hefta allar framkvæmdir félags þess, er nú hefir þar bækistöð sína. En má eg spyrja: hefir það ekki getað athafnað sig þar hingað til löggildingarlaust, og sett þar upp ýms hafnarmannvirki, sem þm. lofaði svo mjög? Reyndar hefi eg nú heyrt sagt, að þau væri ekki mjög traust, og haft er það eftir skipstjóra einum, sem lagði þar að hafskipi, að ekki mundi hann leggja oftar að hrófatildri því, svo að mannvirki þessi eru heldur ekki meðmæli með löggildingunni.

Sama þm. þótti nær að löggilda þennan stað heldur en Kúðaós og Skaftárós. En þetta hefir hann án efa talað af ókunnugleika. Þar er þörf á löggildingu, en hér er löggilding óþarfi. Þar er langt til kaupstaða, en hér er hver kaupstaðurinn við annan.

Eins og hér hefir nú verið að farið, og eg hefi í upphafi orða minna bent til, þá er hér verið að fara með löglausan leikaraskap. Eigi þm. að haldast uppi að læða föllnum frumv. aftur inn í þingið innan í nýjum frv., þvert ofan í þingsköpin, þá væri ómögulegt að fella neitt mál til hlítar hér á þingi. Þá mætti búa til eitt frv. nýtt úr föllnum frumv. og tillögum, og gæti úr því orðið laglegur bálkur á þessu þingi. Þetta sýnishorn mætti kanske duga til bráðabirgða: »Frumv. til laga um ýmislegt snertandi atvinnu, embætti, vísindi og verklegar framkvæmdir hér á landi«. Gæti þá komið í 1. gr. fallið frumv. um byggingasjóðinn; 2. gr. fallið frumv. um fornmenjasafnið; 3. gr. fallin fjárveiting til brúar á Ytri-Rangá; 4. gr. fallin fjárveiting til síma út í Vestmanneyjar; 5. gr. fallið frumv. um laun handa Þórði lækni Sveinssyni á Kleppi, og því næst hvað annað fleira, sem minnugum mönnum kann að hugkvæmast, og menn þykjast þurfa að rétta hluta sinn um. Afleiðingin af þessu atferli yrði sú, að þesskonar endurtekningar gætu orðið óendanlegar; það yrði flækja, sem alsendis ómögulegt yrði að ráða fram úr; á þinginu yrðu háð nokkurskonar »hjaðningavíg«, þar sem alt gengi aftur jafnharðan og það væri drepið.

Eg þykist svo ekki þurfa að tala öllu frekar um þetta mál, því að eg vona, að háttv. þingdeild sé það nokkuru veginn ljóst, að frumv. það, sem eitt út af fyrir sig og í ólöglegu formi þótti óhæft, eigi ekki meiri rétt á sér fyrir það, þótt reynt sé að smeygja því ólöglega inn í annað frumv.