19.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1430 í B-deild Alþingistíðinda. (1961)

94. mál, stjórnarskipunarlög

Ráðherrann (H. H.):

Ef frumvarpið um ríkisréttarsamband Danmerkur og Íslands, sem eg nú hef lagt fyrir alþingi, nær fram að ganga, falla burtu lögin um hina stjórnarlegu stöðu Íslands í ríkinu frá 2. jan. 1871, sem stjórnarskrá um hin sérstaklegu málefni Íslands frá 5. jan. 1874 og stjórnarskipunarlögin um breyting á henni frá 3. okt. 1903 eru bygð á, og í staðinn kemur annar grundvöllur á að byggja. Þar sem stjórnarskipun Íslands hefir hingað til verið bygð á ráðstöfun (delegation) af hálfu hins danska ríkisvalds á löggjöf og stjórn tiltekinna sérmála í óaðskiljanlegum ríkishluta, verður hún í skjóli sambandslaganna eftirleiðis bygð á ráðstöfun Íslands sjálfs, er það gerir sem sérstakt ríki um alla hagi sína. Danmörk hefir þá eigi önnur afskifti af Íslandsmálum en þau, sem bygð eru á fullmakt eða ráðstöfun af Íslands hálfu og stjórnarskipunarlögin verða því eftirleiðis ekki að eins stjórnarskrá um hin sérstaklegu málefni Íslands, heldur stjórnarskrá Íslands.

Jafnframt sambandslagafrumvarpinu er því lagt fyrir þingið þetta frumvarp til nýrrar stjórnarskrár, þar sem burt eru feldar tilvitnanir þær í stöðulögin, sem eru í núgildandi stjórnarskipunarlögum, og öll þau ákvæði, sem við þann grundvöll miðast, og í staðinn settar tilvitnanir til sambandslaganna og þau önnur almenn ákvæði um stjórnarfyrirkomulag í landinu, sem grundvallaratriði mega heita, en sem óþarft hefir þótt að taka upp í stjórnarskrána um hin sérstaklegu málefni Íslands, vegna þess réttargrundvallar, sem hún taldist bygð á.

En auk þeirra breytinga, sem beint eru afleiðing af undirstöðubreytingunni og hinum nýju sambandslögum, hefir þótt rétt að nota tækifærið til þess að stinga upp á ýmsum öðrum breytingum á stjórnarskipuninni, sem virðast standa í eðlilegu sambandi við hinar óhjákvæmilegu breytingar, og sumpart samsvara betur nútímans kröfum og ástandi í landinu. Þar að auki hefir þótt rétt að víkja við orðalagi á ýmsum greinum stjórnarskrárinnar, og færa nokkrar greinar til vegna efnis þeirra.

Jafnvel þótt eigi þyki enn næg ástæða til þess að fastbinda það í stjórnarskrá, að ráðherrarnir skuli vera fleiri en einn, þá þótti þó hins vegar rétt að opna veg til þess, að hægt væri að gera þá breytingu, ef þurfa þætti, án þess að raska stjórnarskránni, og vísa eg í þessu efni til athugasemda við frumvarpið.

Aðal-ástæðan fyrir því að fjölga þurfi ráðherrum er ekki sú, að störf ráðherra séu svo mikil, að einn maður geti ekki afkastað þeim, heldur hitt, að störfin eru svo margskonar og ólík hvert öðru, að það er nálega óhugsandi, að einn maður hafi svo fjölhæfa þekkingu, að hann geti gegnt öllum ráðherra-störfunum með sömu alúð og þekking. Það þykir sjálfsagt, þegar ráðherrarnir eru orðnir fleiri en einn, að þeir ræði með sér öll mál, þau er mikilsvarðandi eru, í ráðherra-stefnu. Hins vegar þótti ekki fært að fastbinda það í stjórnarskránni, heldur er ætlast til þess, að lög þau er ákveða fjölgun ráðherra setji einnig ákvæði um ráðherra-stefnur.

Önnur aðal-breytingin er um skipun efri deildar. Fyrst og fremst er lagt til, að konungkjör þingmanna sé afnumið. En til þess að ná því marki, að þroskaðir og gætnir menn með nægilegri sérþekking á hinum ýmsu málum skipi efri deild, eins og verið hefir meiningin með skipun konungkjörinna þingmanna, eru ýmsar leiðir hugsanlegar; en stjórnin hefir aðhylst þá leið, að láta alla efri deild vera kosna með hlutfallskosningu í einu kjördæmi, er tekur yfir alt landið, og að setja aldurstakmörkin fyrir kosningarrétti og kjörgengi til efri deildar, þannig, að þau séu bundin við 40 ára aldur.

Með því móti virðist, að nokkur trygging muni fást fyrir því, að til efri deildar verði yfirleitt kosnir menn með alment viðurkendri þekkingu og dugnaði, þjóðkunnir menn, vanir hluttöku í opinberum störfum, sem því ættu að hafa öll skilyrði til þess að hafa þroskaðar skoðanir á málunum.

Loks eru ákvæði um það að veita megi konum kjörgengi og kosningarétt með einföldum lögum, ef þær að öðru leyti fullnægi sömu skilyrðum og karlmenn. Það þótti rétt að opna greiðan veg til þess að fullnægja þeirri réttlætiskröfu, að veita konum full pólitísk réttindi jafnt karlmönnum, svo fljótt sem unt er. Hins vegar er undirbúningi kvennþjóðarinnar undir slíkt starf þannig varið, að það gæti verið varhugavert að gera svo bráða breyting, að kasta öllum þeim hóp alt í einu óskorað inn á landsmálavígvöllinn. Þess vegna þótti réttara, að haga svo til í stjórnarskránni, að alþingi ætti kost á því, að setja reglur um, að rétturinn veittist smám saman, t. d. eftir aldursflokkum eða eftir öðrum skilyrðum.

Annars eru ýmsar breytingar frumvarpsins gerðar í samræmi við frumvörp um endurskoðun stjórnarskrárinnar, er áður hafa legið fyrir alþingi og verið samþykt þar, og hygg eg, að fullnægt sé hér flestum þeim óskum, sem fram hafa komið. Hið háa þing getur nú gert þær breytingar, er því líkar.