19.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1441 í B-deild Alþingistíðinda. (1967)

94. mál, stjórnarskipunarlög

Forseti (H. Þ.):

Viðvíkjandi því, sem háttv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ó.) gat um, að umræður hnigu um of að einstökum atriðum við þessa 1. umr., skal eg geta þess, að mér hefir ekki þótt hlýða að takmarka málfrelsi h. þm. í jafn merkilegu máli, enda hefði eg þá þurft að byrja á hæstv. ráðh. sjálfum.