19.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1441 í B-deild Alþingistíðinda. (1970)

94. mál, stjórnarskipunarlög

Björn Sigfússon:

Eg er samþykkur þeirri tillögu, sem áðan kom fram, að þessu frumv. verði vísað til nefndarinnar í sambandslagafrumv., því að sú nefnd er svo fjölmenn og vel skipuð, að vænta má, að málið verði vel athugað.

Eg vil leyfa mér að gefa nefndinni nokkrar bendingar, einkum út af orðum háttv. þm. Barðstr. (B. J.). Eg er honum ekki samdóma um það, að hentugra sé að hafa þingið óskift en að hafa það í tveim deildum. Það mætti máske búa svo um, að verkdrýgra væri með þeim hætti. En mér finst margt benda á það, að betra sé að hafa þingið tvískift og þykist hafa nokkura reynslu í því efni, að málin skýrast betur og verða betur athuguð við það að ganga í gegnum 2 deildir. Málin munu oftar græða en tapa á því. Þetta atriði vona eg að nefndin athugi vandlega.

Annað atriði er það og, sem eg vil biðja nefndina að athuga, en það er, hvort ekki sé ástæða til að skilja stjórnarskrárbreytingarnar frá sambandslagafrumv. Þar er í boði lækkun aldurstakmarks fyrir kosningarrétti, afnám konungkjörinna þingmanna og kosningarréttur kvenna. Þetta þrent eru svo miklar endurbætur, að þjóðin mundi taka því með óánægju, ef þær yrðu að bíða eftir sambandslagafrv.

Þessi atriði legg eg mikla áherzlu á, að nefndin athugi vel.