06.05.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1457 í B-deild Alþingistíðinda. (1982)
94. mál, stjórnarskipunarlög
Jón Ólafsson:
Herra forseti! Frsm. (Sk. Th.) talaði fyrir munn meiri hlutans, þegar hann sagði, að nefndin hefði ekki kært sig um, að málið gengi fram á þessu þingi. Minni hlutinn gat vitanlega engu um það ráðið. Eg get tekið það fram, úr því að þm. talaði um nefndina, að meiri hlutinn, með því að starfa ekki meðan ráðherrann var utan, hindraði minni hlutann í því að koma málinu fram, svo snemma að það yrði rætt. Eg veit, að vilji minni hlutans var, að málið gengi fram á þinginu.