14.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1475 í B-deild Alþingistíðinda. (2005)

56. mál, byggingarsjóður

Flutningsmaður (Björn Kristjánsson):

Eg hélt að þessi meinlausa þingsál. mundi ekki mæta svo miklu harki. Háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) fór að bera þingsál.till. saman við Viðeyjarlöggildinguna. Eg skil ekki að hægt sé að bera slíkt saman, heldur enginn sérlegur vandi fyrir þessa deild að laga það, þótt það hafi slæðst inn. En að þingið geri sig ómerkilegt, þótt það veiti stjórninni heimild til þess að leigja blett af þessari lóð, þar sem lögin ákveða að lóðina skuli selja, fæ eg ómögulega séð. Ef selja á lóðina fyrir 5 kr. feralin getur langur tími liðið, þangað til yfir höfuð nokkuð selst af henni, og er þá nokkuð að því, þótt landssjóður hafi nokkuð upp úr henni á þennan hátt? Hér er heldur als ekki verið að fara fram á að slá neinu af lóðinni, það hefi eg áður sýnt. Lóð þessi hefir ekki selst enn þá, og það lítur út fyrir, að það bíði dálítið enn þá, en þó sá tími komi, að hægt verði að selja lóðina fyrir 5 kr. feralin, þá skaðast landssjóður ekki á að leigja þennan blett, hann mundi þvert á móti græða á leigunni á þennan hátt og því meir sem salan drægist lengur. Hins vegar er það mikils virði fyrir hina fátækari bæjarbúa, að læknirinn sé á hentugum stað í bænum og als ekki víst, að hann geti verið þar sem hann nú er. Held mig við það, sem eg hefi sagt, að læknirinn getur ekki fengið hentuga lóð í bænum fyrir hæfilegt verð.