23.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1485 í B-deild Alþingistíðinda. (2016)
95. mál, breyting á Þingvallaviðauka
Magnús Blöndahl:
2. þm. Árn. (S. S.) hélt því fram, að Reykjavík bæri meir frá borði, og væri gert hærra undir höfði en öðrum kjördæmum landsins, af því að þar ættu svo margir þm. heima. En þetta hygg eg eigi vera rétt, því að eg ímynda mér, að þótt þeir eigi hér heima, muni þeir skoða sig sem fulltrúa þeirra kjördæma, sem þeir eru kosnir fyrir. Hér er því eigi verið að fara fram á, að Reykjavík sé gert hærra undir höfði en öðrum kjördæmum heldur þvert á móti, að bætt sé úr þeim misrétti, sem bærinn svo lengi hefir átt við að búa. Þegar þess er gætt, að hér í Reykjavík eru yfir 1800 kjósendur, verða menn að viðurkenna, að bærinn verður mjög útundan og því sanngjörn krafa, að þingmönnum hér sé fjölgað.