27.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 446 í B-deild Alþingistíðinda. (202)

8. mál, laun háskólakennara

Framsögumaður (Lárus H. Bjarnason):

Þar eð engar breyt.till. hafa komið fram og stjórnarfrumvarpinu hinsvegar fylgja ítarlegar ástæður, get eg verið stuttorður.

Frumvarp þetta er nátengt háskólafrumvarpinu, sem nýbúið er að samþykkja hér í deildinni. Það fer aðallega fram á tvent, fjölgun kennara og breyting á launum þeirra.

Fyrra atriðið, fjölgun kennara, er að nokkru leyti bein afleiðing af háskólafrumvarpinu, sem gerir ráð fyrir að einni deild sé bætt við. En auk þess er í þessu frumv. farið fram á, að 2 prófessorum sé bætt við, sínum við hvora deild, lagadeild og læknadeild. — Eg vona, að háttv. deildarmönnum sé það ljóst, að lagadeildin verður að vera að minsta kosta jafnvel ment að kenslukröftum sem hinar deildirnar, og enda betur.

Lögin eru séreign okkar, en það eru ekki alþjóðavísindi svo sem læknisfræði og guðfræði. Löggjöf vor byggist að miklu leyti á íslenzkum grunni. Það sem útlent er í henni, er fram að 1662 fremur af norskum rótum runnið en dönskum. Dönsk áhrif gera ekki vart við sig að mun, fyrr en eftir að einveldið kemst á. Nokkrar greinir laganámsins eru alveg íslenzkar, svo sem landsréttur og réttarsaga. Sumar eru að meiru eða minna leyti íslenzkar, svo sem borgaralegur réttur I.-II., og réttarfar. Aðeins ein grein er að mestu leyti dönsk, hegningarréttur.

það er því meiri ástæða til að fjölga kennurum við lagadeildina, sem það má segja að enginn maður, utan lands né innan, viti til fulls hvað eru gildandi lög á landi hér. Engin rannsókn til um neitt, eða því sem næst, enda ekkert ábyggilegt íslenzkt lagasafn til á undan stjórnartíðindunum. Að vísu geri eg ekki lítið úr lagasafni Jóns Sigurðssonar, en hann hefir tekið upp í það öll lög, sem hann áleit að gæti komið til tals að giltu hér, og þessvegna er það þegar af þeirri ástæðu, ekki allskostar ábyggilegt. Af því að fátt, eða því sem næst ekkert, hefir verið rannsakað í löggjöf vorri, hefir lítið sem ekkert verið skrifað um íslenzk lög nema doktorsdisputatia Magnúsar Stephensens og drög til réttarsögu eftir Vilhjálm Finsen, sem hann sjálfur bannaði að prenta, af því hann áleit þau svo ófullkomin. Hér liggur því fyrir umfangsmikil og erfið rannsókn fyrir lagakennarana. En auk þess þurfa þeir að semja kenslubækur, búa sig undir kenslustundirnar o. fl. Það er því fullkomlega »conditio sine qua non«, eða beint lífsskilyrði, að lagakennurunum fjölgi; tveir kennarar komast ekki með nokkru móti yfir það sem gera þarf. Það er er ekkert viðlit, að þeir geti búið undir aukaprófið 1912; til þess þarf sérstaka fyrirlestra og undirbúning. það er jafnvel lítil von um að skólinn geti útskrifað nokkra stúdenta árið 1912, ef nokkuð fjölgar á honum, nema kennurunum verði fjölgað um leið. Nú eru 8 stúdentar á skólanum, og vafalaust bætast einhverjir við næsta haust. En undir eins og þeim fjölgar, verður að skifta þeim niður í tvær deildir. En af því leiðir aftur, að hvor kennari getur aðeins haft eina kenslustund á dag með hvorri deild. því að það er ómögulegt fyrir hvorn kennarann, að hafa meira en tvær kenslustundir daglega. Þegar frumv. um stofnun lagaskóla lá fyrir þingi 1907, var eg þegar á þeirri skoðun, að það mundi verða ókleift að komast af með tvo kennara við skólann. Þá fekst því ekki framgengt að þeir yrðu fleiri. En nú er reynsla fengin fyrir því, að það er ekki hægt. Og eg vona að alþingi sjái, að það verður að búa svo vel um lagadeildina að kenslukröftum, að hún geti int starf sitt sómasamlega af hendi. Þegar litið er til annara skóla, og starf skólanna eða deildanna er borið saman, sést það, að ekki er til of mikils mælst, þó farið sé fram á, að lagakennurunum sé fjölgað um einn. Prestaskólanum eru ætlaðir 2 fastir kennarar og 1 aukakennari. Læknaskólinn á að hafa 2 fasta og 6 aukakennara. Á hvorugum þessara skóla er þó kend nein sér-vísindagrein eins og á lagaskólanum. Mentaskólinn hefir 10 kennara. Við Akureyrarskólann er samkvæmt frv., sem nú liggur fyrir þingi, ætlast til að fastir kennarar verði 4. Við lagadeild háskólans í Kaupmannahöfn, þar sem lögfræði hefir verið kend í marga mannsaldra, eru 9 kennarar, hér um bil einn í hverri grein. Hér þyrfti líka helzt einn kennara í hverri grein. En í frumvarpinu er að eins farið fram á, að kennurum sé fjölgað um einn, svo að hver kennari þurfi þó ekki að kenna nema tvær greinir.

Um læknaskólann er það að segja, að nú er þar að eins einn óskiftur kennari. Hingað til hefir landlæknir haft á hendi aukakenslu við skólann. En þegar forstöðumenn embætta skólanna ræddu frumvarpið með sér, sýndi landlæknir fram á það, að, eins og embættið nú er orðið, er ókleift að hafa þessa kenslu á hendi jafnframt því. Landlæknisembættið er orðið miklu erfiðara og umfangsmeira en það var, þegar landlækni var gert að skyldu að taka að sér forstöðumensku læknaskólans og kenslu við hann. Þá voru 20 læknishéruð á landinu öllu; nú eru þau um 43 auk margra sérlækna. Þá var að eins eitt sjúkrahús á landinu; nú eru þau mörg. Þá voru samgöngur miklu minni en nú, og sjúkdómshættan þar af leiðandi minni. Þá voru fáir löggiltir verzlunarstaðir á landinu; nú eru þeir mý-margir. Alt þetta hefir aukið mjög störf landlæknis. Skrifstofuhald hans er miklu meira en áður, og ferðalög meiri og tíðari. Við þetta má bæta, að landlæknisembættið er miklu fremur praktiskt umboðs embætti en vísindalegt. Nefndin áleit því nauðsynlegt, að leysa landlækni undan allri kenslu. En af því leiðir, að stofna verður eitt nýtt fastakennaraembætti við læknadeildina.

Við prestaskólann eru nú 3 fastakennaraembætti, öll með eftirlaunarétti. Frumvarpið fer fram á að fækka þeim um eitt, þannig, að í stað eins eftirlaunaembættisins komi eftirlaunalaust dósentembætti. Þessi breyting stafar af því, að ætlast er til, að heimspekiskenslan gangi undan þessari deild, og ennfremur, að kenslan í kirkjurétti verði falin einhverjum lagakennaranna.

Um heimspekisdeildina þarf eg ekki að tala. Í henni er ætlast til að verði tveir prófessorar og einn dósent

Þá kem eg að hinu aðalatriðinu í frv., breytingunni á launakjörum kennaranna.

Nú er munurinn á launum forstöðumanna embættaskólanna og annara kennara sá, að forstöðumennirnir hafa 4000 kr. laun, en dósentarnir 2800 kr., að undanteknum dósentinum við læknaskólann og öðrum dósent við prestaskólann, sem hafa að eins 2400 kr. laun hvor; en öllum embættunum fylgir eftirlaunaréttur. Þessi munur stafar af því, að nú hafa forstöðumennirnir umsjón með skólunum að öllu leyti. Verði háskóli stofnaður, fellur þessi umsjón niður; það er ætlast til, að prófessorarnir skiftist á að stjórna deildunum. Það er því engin ástæða til að gera upp á milli launa prófessoranna, enda leggur frumvarpið til, að þeim sé öllum gert jafnhátt undir höfði, og ætlar þeim 3200 kr. byrjunarlaun. Dósentunum ætlar frv. 2400 kr. óbreytileg laun án eftirlaunaréttar. Þessu hvorutveggju vill nefndin breyta. Það er ekki svo að skilja, sem hún álíti 3200 kr. of há prófessoralaun; því fer fjarri. En hún álítur 2400 kr. of lág laun fyrir dósenta, og það því fremur, sem þeim embættum fylgir ekki eftirlaunaréttur. Hún leggur því til, að dósentalaunin séu hækkuð upp í 2800 kr., en til þess það verði hægt, stingur hún upp á því, að laun prófessoranna séu lækkuð niður í 3000 kr. Nefndin þykist því fremur geta lagt það til, sem prófessorum eru ætluð hækkandi laun með hækkandi embættisaldri Við leggjum mikla áherzlu á, að þetta hækkunar-»princip« sé tekið upp, 29 og það því fremur, sem það var lögleitt um presta í prestalaunalögunum frá 1907. Það getur engum dulist, að núverandi laun dósentanna, 2400—2800 kr. eru of lág; á því getur enginn lifað með fjölskyldu. Og 3000 eða 3200 kr. er líka of lágt. Þau launalög, sem nú gilda, voru gefin út árið 1889. Ef ætti að miða laun forstöðumannanna við gildi peninga þá, ættu þeir að hafa nú 5400—5600 kr. árslaun, en hafa, ef miðað er við 1889, í raun og veru að eins 2400—2600 kr. Miðað við 1889 ættu dósentar nú að hafa, þeir launahærri 3780—3920 kr., en hinir launalægri 3240—3360 kr. árslaun, en hafa nú, miðað við sama ár, þeir launahærri 1680—1820 kr. og þeir launalægri 1440 —1560 kr. árslaun. Mönnum kann að þykja þetta ótrúlegt. En skýringin liggur í verðfalli peninga. Indriði Einarsson, sem mun vera einna fróðastur manna hér á landi í þessum efnum, telur að peningar hafi á árunum 1901 —1907 yfirleitt lækkað um 25%. Og Sighvati bankastjóra Bjarnasyni telst til, að peningar hafi síðan 1889 fallið í verði um 35—40% hér í Reykjavík. Af þessu leiðir hinn mikli munur á laununum, að forstöðumenn skólanna ættu að hafa 5400—5600 kr. í árslaun, en hafa að eins 2400—2600 kr. Embættismennirnir eru þeir einu menn, sem bíða tjón við verðfall peninganna. Allra annara manna laun hafa hækkað að sama skapi, sem peningarnir hafa lækkað í verði. Það má því segja, að nú sé svo komið, að landsjóður sé versti húsbóndinn á landinu. Nú fá t. d. vinnukonur 120 kr. í laun árlega, en höfðu fyrir nokkrum árum 40 kr. Alt hefir hækkað í verði, nema peningar; þeir hafa hrapað.

Annar galli á núverandi launafyrirkomulagi er það, að þau eru óbreytileg, hækka ekki með hækkandi embættisaldri. Og það er því verra, sem þau eru mjög lág. Afleiðingin af þessu hlýtur auðvitað að verða sú, að það verður erfitt fyrir skólana að halda góðum kennurum. Þó einhver fáist í embættið vegna þess að hann er í vandræðum og verður að taka alt sem býðst, þá fer hann auðvitað undir eins og honum býðst eitthvað betra. Lagaskólinn á því láni að fagna, að hafa fengið ágætan kennara í annað kennaraembættið. En hvernig er hægt að búast við, að skólinn geti haldið honum til lengdar, þegar jafnvel nemendur hans geta fengið hærri laun beint frá prófborðinu.

Þessu ástandi vill frumvarpið breyta, aðallega með jöfnun launanna, með því að flytja lágmarkið lítið eitt upp, og svo með því að innleiða það »princip«, að launin hækki með hækkandi embættisaldri, sem er eina ráðið til að halda góðum kennurum.

Við breytingu þá, sem nefndin vill gera á launahlutfalli prófessora og dósenta og áður hefir verið getið um, sparast árlega 1000 kr. Hækkun dósentalaunanna nemur 800 kr., en lækkun prófessoralaunanna 1800 kr.

Annars eru breyt.tillögur nefndarinnar fáar. Hún leggur til að 1. gr. verði feld burtu, vegna þess að sams konar grein er í háskólalögunum. — 2. breyt.till. leiðir af breytingunni á 7. gr. háskólalaganna. Eg bið hæstv. forseta að athuga, að þar hefir slæðst inn prentvilla, á bls. 2 í nefndarálitinu, »aukakennararnir«, en á að vera »aukakennarar«. — 3. breyt.till. hefi eg þegar talað um. — En svo er sú stóra breyting á 4. gr., að lögin skuli þá fyrst ganga í gildi, þegar háskólinn tekur til starfa, og það verður ekki fyr en veitt verður fé til hans í fjárlögunum. Þar með eru breytingamar að eins bréffestar, en það lagt á vald fjárveitingarvaldsins að láta lögin komast úr orðinu á borðið, þegar það sér sér fært og þykir bezt henta. — 5. breyt.till. fer fram á það, að haldið sé sjálfsögðu skilyrði um aukapróf fyrir lagakandídata frá Höfn.

Hefi eg svo ekki meira að segja, en vona, að deildin taki frumvarpinu vel og sjái, að þegar búið er að segja A, verða menn líka að segja B, og samþykki því frv. sem eðlilega og nauðsynlega afleiðing háskólafrumvarpsins.