01.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1508 í B-deild Alþingistíðinda. (2061)
97. mál, heiti á alsherjarstofnunum
Ráðherrann (H. H.):
Það getur verið, að þetta frumv. sé nógu sniðugt til að telja ókunnum trú um, að Ísland sé þegar orðið ríki; sniðugleikinn er fólginn í þessu, að útrýma alveg orðinu »land«, og setja alstaðar »ríki« í staðinn. En þá vantar ákvæði um, að landið sjálft skuli hér eftir heita »Ísríki« en ekki bera þetta óvirðulega landsnafn, Ísland — slíkt væri svo sem ekki eins dæmi. Ekki kalla Svíar sitt land Svíaland, heldur Svíaríki. Ekki heitir landið fyrir suð-austan Þýzkaland »Austurland«, heldur Austurríki, og mörg fleiri dæmi mætti nefna. Eg vil því skjóta því til háttv. flutnm. (J. Þ.) hvort honum virðist ekki rétt, að koma fram með breyt.till. við næstu umr. — ef hún verður nokkur — um það, að létta þessari minkunn af okkar forna Fróni, að kalla það »Ísland« í staðinn fyrir »Ísríki«, til þess að við séum menn með mönnum.
Eg er samdóma háttv. flutnm. um, að það »varði mest til allra orða, að undirstaðan rétt sé fundin«, en við erum ekki á sama máli um það, hvað sé rétt undirstaða undir stöðu Íslands sem ríki. Eg held fyrst sé að fá réttinn, svo komi nöfnin af sjálfu sér. — Enn er Ísland ekki ríki í verunni. En það verður það, ef sambandslagafrv. er samþ. Annars hefi eg skoðað þetta frumv. sem spaug hjá háttv. flutnm., og óska honum til lukku með fyndnina.