01.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1509 í B-deild Alþingistíðinda. (2063)

97. mál, heiti á alsherjarstofnunum

Jón Magnússon:

Eg vil leyfa mér að benda á, að mér er ekki ljóst, hvernig háttv. flutnm. hugsar sér þessi nöfn stofnananna. Landsbankinn heiti Þjóð- eða Ríkisbanki, eða t. d. Landsyfirdómurinn Þjóð- eða Ríkisyfirdómur. Ef flutnm. vill breyta nöfnum þessara stofnana, þá ætti hann að þora að segja það, sem hann í reyndinni ætlast til, að stofnanir þær er um ræðir, skuli kendar við ríki.