01.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1511 í B-deild Alþingistíðinda. (2067)
97. mál, heiti á alsherjarstofnunum
Flutningsmaður (Jón Þorkelsson):
Mér kemur það að vísu ekki undarlega fyrir, þótt háttv. þm. Mýr. (J. S.) hafi ekki skilið, hvað við sé átt í frv. þessu, þar sem margir honum vitrari menn hafa ekki skilið það hér í deildinni, — eða ekki þótst skilja það.
Eg held því fast fram, að frumv. sé í alla staði tímabært og að okkar sé fullur réttur á að segja meiningu vora og að vér séum meira að segja skyldir til að gera það, hvort sem Dönum kann að getast betur eða ver að því. Hér er á enga hættu teflt, og einungis farið fram á það, sem rétt er og sjálfsagt og samkvæmt því, er vér höldum fram um sjálfstæði vort.
Það sem vér höfum komist áfram til sjálfstæðis, höfum vér fengið vegna þess, að vér fórum að taka djörfung til vor og fara að láta í ljósi skýlausan vilja vorn. Eg veit líka, að enginn er hér inni, sem ekki blygðast sín fyrir að segja, að Ísland sé ekki og eigi ekki að vera ríki.
Það þarf ekki fjarska mikla greind til að skilja það, að hér er verið að koma með heiti, sem öll eru jafnrétthá, en sem ekki er ætlast til að séu notuð um sama hlutinn öll í senn, heldur eftir því, sem bezt þykir á fara.
Skal eg svo ekki fara frekari orðum um frumv. þetta, fyr en ef eg skyldi þurfa að taka aftur til máls.