01.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1512 í B-deild Alþingistíðinda. (2068)

97. mál, heiti á alsherjarstofnunum

Sigurður Gunnarsson:

Eg hefi fulla trú á því, að þetta frumv. sé komið fram í góðum tilgangi, og allir verða að virða, hvaða hugarfar liggur á bak við það. Eg get samt sem áður ekki greitt atkvæði með því, vegna þess að vér erum engu nær því að fá sjálfstæði vort viðurkent, þótt það yrði sþ. Heitin koma af sjálfu sér, þegar vér höfum fengið ríkisviðurkenninguna.