15.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1515 í B-deild Alþingistíðinda. (2077)
72. mál, sala kirkjujarða
Framsögumaður (Stefán Stefánsson):
Eg gat þess við 1. umr. af hverjum ástæðum frumv. þetta er fram komið. Nefndin hefir orðið á eitt sátt um það, að samþykkja frumv. með þeirri einni breytingu, sem er á þingskj. 234, en hún áleit, að takmarka bæri nokkuð sölu hjáleigna, þannig, að þær væru ekki seldar, nema þær hefðu sérstök ummerki á engjum og túni. Enn fremur leit nefndin öll svo á, sem og var hugsun mín sem flutningsmanns frumv., að sjálfsagt væri að leita samþykkis hlutaðeigandi prests í hverju einstöku tilfelli. Hvað skoðun hæstv. biskups snertir í þessu máli, þá er það sjáanlegt af bréfi hans til stjórnarráðsins 10. apríl 1908, að hann er hlyntur sölunni með því fyrirkomulagi, sem hér er ætlast til.
Sumir kunna að álíta, að sala þessara jarða sé ekki heppileg fremur en annara þjóðjarða. En þar við er það að athuga, að eins og nú hagar búnaði manna og fólksafla í sveitum, þá er ekki líklegt, að prestar óski framvegis, að búa nema á einni jörð, því ákveðna prestssetri, sem venjulegast er ein með fyrstu og beztu jörðum sveitarinnar.
Eg skal þá ekki fjölyrða meira um þetta jarðasölumál, en vona, að frv. fái góðan byr í þinginu, því eins og eg áður hefi bent á, er það ekki að skoða nema sem sjálfsagða skýringu á lögunum um sölu kirkjujarða, og það sem vitanlega var meining þingsins með þeim lögum.