10.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1526 í B-deild Alþingistíðinda. (2086)

98. mál, Lambhagi og Hólmur

Björn Sigfússon:

Háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) kom enn með sína gömlu kenningu, að skaðlegt væri að selja þjóðjarðir. Hann hefir að vísu fylsta rétt eins og aðrir til þess að fylgja hverri skoðun, sem honum sýnist. En því verður þó ekki neitað, að það sem hann heldur fram, er sérstaklega umboðsmannaskoðun, þeirra er eingöngu hugsa um sinn hagnað. Sami háttv. þm. sagði, að borgunarkjör væru góð. Það er satt, kjörin eru góð. En hvers vegna er því svo háttað? Það er af því, að bæði milliþinganefnd og þingið leit svo á, að þetta mál, að efla sjálfsábúð í landinu, væri svo mikið velferðarmál, að réttast væri að hafa kjörin sem aðgengilegust. Hann sagði líka, að sala þjóðjarða miðaði að því að fella jarðir í verði. Þetta er órökstudd fullyrðing, sem við ekkert hefir að styðjast, og það er nokkurnveginn þveröfugt við það, sem eg þekki til jarðasölu. Matsverð þjóðjarðanna hefir í nærfelt öllum tilfellum, sem mér eru kunn, einkum verið miðað við hæfilegan leigumála jarðanna, og sölu prívatmanna í því og því bygðarlagi, sumstaðar talsvert hærra. Nú hefir þó stjórnin oftast fært verðið upp fyrir matið og sumstaðar að miklum mun, svo niðurstaðan hefir orðið sú, að þjóðjarðirnar hafa orðið dýrari en jarðir prívatmanna og þess vegna hefir oft verið gengið frá kaupunum. Eg gæti nefnt ýms dæmi þessu til sönnunar, ef nokkur vill vefengja það, og fæ eg ef til vill síðar tækifæri til þess.

Eg skal ekki þrátta við hæstv. ráðh. (H. H.) um skilning þjóðjarðasölulaganna. Við munum hvorugur annan geta sannfært. En hann ætti nú að vera kominn að raun um það, að það er varasamt fyrir stjórn að taka of mikið tillit til lýsinga sumra umboðsmanna. Það er að vísu nokkur vorkunn að stjórnarráðið, sem er ókunnugt á hverjum stað, hafi vilst á of glæstum og ósönnum lýsingum og glæpst til að trúa þeim.

Það er ekki vert að gera ráð fyrir, að umboðsmenn yfirleitt reynist óvilhallir dómarar í þeim málum — þó auðvitað séu heiðarlegar undantekningar — heldur má búast við, að þeir spyrni móti sölu. Ekki mundi það þykja hyggilegt að láta sér nægja lýsingu kaupbeiðanda og þó gætu þær verið alveg eins áreiðanlegar. Nei — það eru lýsingar og gerðir hinna eiðsvörnu, óviðkomandi matsmanna, sem bezt má treysta.

Úr því hæstv. ráðh. (H. H.) fór að minnast á sölu Kornsár, verð eg að minna hann á, að í því tilfelli hefir hann sjálfur kannast við, að ekki var vanþörf að fá upplýsingar frá öðrum en umboðsmanni, og þar gekk hann að lokum rétta leið, með því að kveðja til 2 yfirmatsmenn. En hvað þurfti langan tíma í það þóf? Það tók talsvert á fjórða ár.

Sumstaðar hefir verið gengið svo langt í verðhækkun, að jarðirnar hafa ekki verið keyptar, kaupbeiðendur verið bolaðir frá. Sumar jarðir hafa verið keyptar einungis af því að neyð hefir til þess rekið; dæmi þess er sala Sveinsstaða.

Hvað þetta frumv. snertir, eða jarðirnar, sem hér er um að ræða, er ekki að svo stöddu hægt, fyrir þá sem ókunnugir eru, að mynda sér ákveðna skoðun, að því er til verðsins kemur. Þess vegna er eg því fylgjandi, að málið komist í nefnd, því að með því býst eg við, að þær upplýsingar fáist, að málinu verði til lykta ráðið á þann hátt, að hvorki landssjóður né ábúendur hljóti skaða af.