16.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1534 í B-deild Alþingistíðinda. (2097)
99. mál, sala þjóðjarða
Pétur Jónsson:
Þótt mál þetta sé als eigi þýðingarlítið, hygg eg að ekki þurfi að setja það í sérstaka nefnd, — málið er svo augljóst. Það er misskilningur hjá háttv. 2. þm. Eyf. (St. St), að frumv. þetta standi í sambandi við lögin um forkaupsrétt leiguliða, — Lög þessi miða til þess að tryggja sjálfsábúð og koma í veg fyrir leppakaup, á þann hátt, að þegar jörðin er komin út úr sjálfsábúð, að þá lendi hún aftur til landssjóðs, en þá er jörðin á ný föl nýjum ábúanda, ef hann vill. En komist hún á annað borð í einstakra manna hendur, er ekki hægt að stuðla að því með lagaákvæðum, að eigandi komi henni í sjálfsábúð. — Frumv. þetta er því trygging fyrir því að þjóðjarðasölulögin nái tilgangi sínum.