09.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1540 í B-deild Alþingistíðinda. (2107)
70. mál, Skálholt
Framsögumaður (Eggert Pálsson):
Eg skal ekki vera fjölorður um frv. þetta. Eg hygg að margir muni máske setja það í samband við frv. í gær, sem lá fyrir deildinni, um stofnun Hólabiskupsdæmis. Og skal eg ekki neita því, að sami kunni að vera aðalhöfundur beggja frumv. En þótt nefndin hafi ekki verið sammála um frv. um stofnun Hólabiskupsdæmis, þá er hún öll í heildinni sammála um þetta frv. Hún er öll sammála um, að hér sé um stórmerkilegan stað að ræða, sem þjóðin öll ætti að láta sér umhugað um og hafa sjálf til eignar og umráða. Eg veit að ekki alllangt frá þessum stað, Skálholti, liggur mjög merk jörð, sem nú er að komast í algerða órækt, svo mikla órækt, að sagt er að nábúarnir taki að sér að slá túnið þar, eins og í gustukaskyni. Og eins og komið er með þessa jörð, Bræðratungu, hyggur nefndin að gæti ef til vill farið um Skálholt, ef illa skyldi til takast síðar meir, og ekkert væri að gert. Og það vill hún fyrirbyggja með frv. þessu.
Jörðin er viðurkend eitthvert mesta höfuðból landsins og söguríkasta, og getur án efa átt enn fyrir höndum glæsilega framtíð, svo framarlega sem þetta land heldur áfram að vera til og
hún lendir ekki í höndum einstakra manna eða félaga, sem ekkert hugsa um framtíðarhag landsins, Yrði settur upp skóli hér í austursýslunum einhvern tíma í framtíðinni, lýðháskóli, bændaskóli eða jafnvel kennaraskólinn fluttur í sveit, þá mundu menn hafa augastað á Skálholti til slíkra hluta; og þá væri einkar gott, að jörðin væri þegar orðin eign landsins. Eg get nú ímyndað mér, að margur hugsi kanske að þetta frv. ríði eitthvað í bága við þjóðjarðasölulögin og þjóðjarðasöluhugmyndina. En eg hygg það vera einmitt í anda þeirra laga en ekki gagnstætt þeim.
Sé það rétt álitið, að Skálholt sé einn af þeim stöðum, er ekki skyldi seljast ef hún væri þjóðeign, samkvæmt þjóðjarðasölulögunum, liggur þá ekki beint við samkvæmt anda þeirra laga að landið kaupi hana til þess að gera hana aftur að þjóðareign. Það sem enn fremur gerir það æskilegt, að jörðin verði þjóðareign er það, að það má ganga að því sem vísu, að þar í landi kunni að vera fólgnar margvíslegar og merkilegar fornmenjar, sem hægra væri að komast yfir og vernda, ef landið sjálft ætti jörðina, heldur en ef hún væri einstaklings eign. Annars skal eg ekki fjölyrða meira um mál þetta, en vona, að það fái að ganga fyrirstöðulaust til 2. umr.