11.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1543 í B-deild Alþingistíðinda. (2111)

70. mál, Skálholt

Jón Þorkelsson:

Út af ummælum hins háttv. þm. Mýr. (J. S.) vil eg leyfa mér að spyrja hann, hvort hann þori að ábyrgjast það og hvort hann hafi nokkurt bréf og innsigli þar upp á, að jörðin verði ekki föl innan skams? Færi svo, að jörðin yrði bráðlega til kaups, þá er gott að hafa þessi lög, því að ekki er auðhlaupið að búa til lög milli þinga. Þá geta jarða»spekúlantarnir« á meðan komið í veg fyrir kaupin með því að verða fyrri til, og alt verið um garð gengið, þegar næsta þing kæmi saman.