06.05.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1570 í B-deild Alþingistíðinda. (2144)

103. mál, eiðatökur

Jón Jónsson S.-Múl.:

Mér þótti gaman að heyra, að háttv. sessunautur minn 1. þm. Rvík. (J. Þ.) varð hálfvondur. Og eg stóð upp til þess að halda því við eða auka á það. Eg vil sem sé taka í sama strenginn og háttv. þm. Vestm. (J. M.). Það ætti öllum að vera ljóst, að þingsályktunartillögur eru til þess gerðar, að ýta undir stjórnina að gera það, sem bráð-nauðsynlegt er talið, en stjórnin annars er ófús á að gera. Menn verða því að vera varfærir í þessu efni. — Þetta þing hefir misbrúkað þetta góða vopn, svo að það mun reynast sljórra, þegar á liggur síðar að beita því og ástæða er til. Það sýnir sig líka, að hæstv. ráðherra virðir þessar þingsályktunartillögur ekki svo mikils, að vera hér við í deildinni, þegar þær eru ræddar. Eg ætlaði að eins að taka þetta fram. En þótt það sé nú raunar sagt á elleftu stund, þar sem þingtímanum er næstum lokið, þá þykir mér rétt, að vekja athygli háttv. þingd. á því.