26.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1608 í B-deild Alþingistíðinda. (2177)

108. mál, lækningaleyfi

Flutningsmaður (Jón Magnússon):

Eftir þingsköpunum þarf að leita leyfis deildarinnar til þess að frumv. þetta verði tekið á dagskrá, því að það hefir ekki komið til þingsins fyrir hinn lögskipaða tíma, innan fjögra vikna frá þingsetningu. Mér ber sem flutningsmanni að gera grein fyrir frumv. þessu. Tilgangurinn með því er sá að koma á eftirliti með öllum, sem við lækningar fást, hvort sem lærðir eru eða ólærðir. Þar með er tilætlunin als ekki sú að banna próflausum læknum að taka sjúklinga til meðferðar, eins og sjá má á frumv., því að þar er gert ráð fyrir, að próflausir menn geti fengið leyfi til að stunda lækningar.

Þessi grein heilbrigðislöggjafarinnar hefir staðið óhögguð frá 1884, og hefir þó síðan mikið breytst bæði heilbrigðislöggjöf landsins yfirleitt og læknaskipun sérstaklega, þar sem læknar eru nú hálfu fleiri en þá. Það virðist því tími til kominn, að þetta verði íhugað af þingi. því hefi eg flutt frv. þetta. En vera má samt, að ekki sé sanngjarnt að heimta það að frumv. þetta verði að lögum nú á þessu þingi.

Fleiri orðum hirði eg ekki að fara um frumv. að svo komnu, að minsta kosti ekki áður en leitað hefir verið leyfis deildarinnar um að það fái að komast að.