26.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1610 í B-deild Alþingistíðinda. (2181)

108. mál, lækningaleyfi

Flutningsmaður (Jón Magnússon):

Frv. þetta er komið frá landlækni, svo sem getið er um í athugasemd. aftan við það. Stjórnarráðinu var sent það, en það kom of seint til þess að stjórnin gæti lagt það fyrir þingið, og því hefi eg tekið að mér flutning þess. Eg hefi gert það sérstaklega í þeirri von, að deildin taki það til íhugunar, og setji nefnd í það. Eg fyrir mitt leyti mundi telja heppilegt að lögleiða slík ákvæði, sem í frumv. eru fólgin, sérstaklega vegna eftirlits með læknunum, en aðaláherzluna legg eg á það nú, að frumv. sé íhugað. Í því sambandi skal eg geta þess, að eg tel einkar heppilegt, að setja inn í frumv. ákvæði um þóknun til praktiserandi lækna, svo sem háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) lagði til.

Önnur orsök til þess, að frv. þetta er komið fram er tilfelli, sem kom fyrir í læknishéraði einu nálægu. Héraðslæknir hafði fundið berklaveiki í sjúklingi á bæ einum, og lagt til að hafa hann í sérstöku herbergi. Þessu var fylgt og leið sjúklingnum bærilega. Nú kom skottulæknir einn á bæ þennan, skoðaði sjúklinginn og kvað enga tæringu í honum vera. Hann réð til að láta sjúklinginn vera í baðstofunni innan um hitt fólkið, því að þar væri hlýrra. Þetta var gert. Skottulæknirinn sat þar í hálfan mánuð við góðan beina, og fekk 150 kr. að viðskilnaði. Litlu eftir að skottulæknirinn fór af bænum dó sjúklingurinn úr berklaveiki. Síðan hafa fleiri menn á bænum fengið tæringu.

Það er ekki til neins að vera að koma á sóttvörnum, ef það er ekki trygt, að læknar, sem vit hafa á, skoði sjúklingana; þar er ekki hægt að byggja á sögusögn ólærðra lækna.

Það er ekki rétt hjá háttv. Þm. A.-Sk., (Þorl. J.), að tilætlunin með frv. sé að banna ólærðum læknum lækningar. Landlæknir getur eftir því veitt þeim lækningaleyfi, og því mundi í afskektum héruðum, t. d. Öræfum, slíkt leyfi verða veitt, einkum þegar héraðslæknar eru í mikilli fjarlægð. En meiningin er að útiloka þá frá að fást við lækningar, sem als ekkert vit hafa á því.

Annars er ekki vert að deila um þetta nú frekar. Eg hygg að háttv. deild viðurkenni, að ástæða sé til að íhuga málið; legg eg til að skipuð verði 5 manna nefnd í það, og er nefndarálit væri komið um málið, væri ástæða til að ræða það nánara í einstökum atriðum.