06.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1626 í B-deild Alþingistíðinda. (2193)

110. mál, þingtíðindaprentun

Jón Magnússon:

Þetta frv. lítur að vísu vel út, að minsta kosti fyrir þingið, þar sem leysa á band af því sjálfu, þinginu. En meiningin er samt önnur í raun og veru; meiningin er að taka af prentun á umræðum þingsins.

Eg fyrir mitt leyti tel sjálfsagt að prenta umræðurnar, alveg eins og gert hefir verið áður — eða þá að prenta als ekki neitt.

Og að minsta kosti væri heppilegra að setja alveg fasta reglu um þetta, ef breyta ætti, heldur en láta það vera alveg óákveðið, hvort prenta skuli umræðurnar eða ekki, eða hvernig skuli prenta þær.

Það yrði óneitanlega mjög óviðkunnanlegt, ef prentaðar yrðu hér eftir umræðurnar á sumum þingunum, en ekki sumum, og stundum útdráttur að eins af þeim, en stundum nokkurn veginn eins og hingað til hefir tíðkast, því að það yrði eftir till. háttv. flutnm. (B. J.) alveg undir forsetunum komið, hvort nokkuð skyldi prenta eða ekki, og hve mikið prenta skyldi.

Það er að vísu lofsvert og fagurt að spara landsfé, en slíkur sparnaður og hér ræðir um er ekki réttmætur.

Hins vegar er ekki hægt að segja, að fé því sé með öllu glatað, sem fer úr landssjóði til þessa. Þingskriftirnar hafa oft orðið ungum mönnum og efnilegum töluverður styrkur til að afla sér menningar, og yfirleitt munu menn á eitt sáttir um það, að slíku fé sé ekki til einskis varið.

Hitt fer mest til prentaranna — því að pappírinn og annað þess konar hleypir kostnaðinum ekki mjög mikið fram. — því fé er heldur ekki á glæ kastað.

Þó að það sé allmikið fé, er úr landssjóði fer með þessu móti, þá er skaðinn í rauninni ekki svo tilfinnanlegur: féð er blátt áfram látið úr einum vasanum í annan.

Alt öðru máli væri að gegna, ef féð færi út úr landinu, þá væri kostnaðurinn tilfinnanlegur.

Það má að vísu segja um sumt það, sem prentað er í alþt., að það sé ekki mikils virði, en margt er þar þó, er menn girnast að sjá.

Fyrir sögu landsins hefir það mikla þýðing, að umræðurnar á alþ. séu prentaðar; því verður als eigi neitað, vér værum nú miklum mun ófróðari um sögu landsins síðan um 1850, ef vér hefðum ekki alþt. Fyrir hvern þann, er rannsaka vill sögu landsins eftir þann tíma, eru þingtíðindin, ekki síst umræðuparturinn, óþrjótandi auðsuppspretta. Það má máske segja, að fyrir sagnfræðingana nægi að umræðurnar séu skrifaðar, og geymist í handriti; en fyrst er nú það, að slíkt handrit er ekki svo vel aðgengilegt fyrir marga, og svo er hitt, að þá sparaðist ekki borgunin til ritaranna. Og að segja það, að blöðin geti flutt tíðindin af þinginu, það er ekki til neins, því að það er vitanlegt, að blöð vor eru eigi fær um, enn sem komið er, að flytja nema mjög ófullkomnar fréttir af þingi, svo að segja með höppum og glöppum.

Við skýringar þeirra laga, er frá þinginu koma, er það mjög mikilsvarðandi að hafa þingtíðindin, ekki síður oft og einatt umræðurnar, en skjölin; það vita allir þeir, er nokkuð hafa þurft að eiga við lögskýringar.

Eg tel það afturför, ef hætt yrði að prenta alþt, þó ekki væri nema fyrir þá sök, að þau eru mörgum til fróðleiks og skemtunar. (Björn Jónsson: Skemtunin gæti verið ódýrri). Getur verið, að ódýrri skemtun mætti fá, en hér er ekki að eins að ræða um gaman, heldur einnig gagn.

Þjóðin á rétt á að sjá, hvað hér gerist, enda þótt fáir lesi mikið af því. Og látum svo vera, að einungis 2—3 menn í hverjum hrepp læsu nokkuð að ráði í alþt. Þeir eiga í rauninni heimting á því að missa ekki það færi, sem þingtíðindin gefa, til þess að fá að vita, hvað á þinginu gerist.

En það tjáir ekki að deila um það, hvort fleiri eða færri lesi þingtíðindin, hvorki eg né háttv. flutnm. (B. J.) getur sannað neitt í þessu efni.

Það er þó næsta ósennilegt, að ekki sé einmitt töluvert lesið, að minsta kosti þekki eg til þess að menn upp til sveita hafa haft miklar mætur á alþt., og lesið þau töluvert.

Mér virðist annars, að ekki sé neitt áríðandi að vinda bráðan bug að þessu máli; menn ættu að hugsa sig vel um, áður en farið er að breyta þeirri skipun um að gera kunnug störf þingsins, sem nú hefir lengi haldist; mætti bíða þangað til það frumvarp um þetta efni kæmi frá hinni væntanlegu nýju stjórn.

Á hinn bóginn virðast menn hafa lagt ótrúlega mikið kapp á þetta; það hafa verið gerð afbrigði frá þingsköpunum til þess að koma þessu máli á dagskrá í dag. Mætti ætla, að hér lægi eitthvað það á bak við — ef til vill — er ekki er gert opinskátt.

Eg endurtek það, sem eg sagði áðan, að það er mjög óheppilegt, að alt valdið í þessu efni sé hjá forsetunum; þeir þurfa ekki að ráðfæra sig við hina þingmennina, og þingmenn hefðu enga tryggingu fyrir því, að neinni vissri og réttri aðferð væri fylgt við prentunina.

Nei, þá væri miklu réttara að prenta als ekkert af umræðunum.

Eg ræð háttv. deild til að fella þetta frumv. nú þegar og láta á þann hátt í ljósi vilja sinn um að prentuninni skuli haldið áfram í sama horfi og verið hefir.