06.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1633 í B-deild Alþingistíðinda. (2197)
110. mál, þingtíðindaprentun
Flutningsmaður (Björn Jónsson):
Það sem háttv. ráðh. mintist á að skjóta málinu til nefndarinnar í stjórnarskrármálinu, og að hún styngi upp á að hafa engin þingsköp í lögum, sé eg ekkert á móti, en mér finst það engin áhrif geta haft á þetta mál. Þar sem háttv. ráðh. (H. H.) og h. þm. Vestm. (J. M.) voru hræddir við að leggja málið á vald forseta, þá sé eg enga skynsamlega ástæðu til þess, að það geti verið hættulegt, því þeir mundu bera málið undir þingið og haga sér eftir vilja þess, enda má breyta þessu ákvæði í frumv., ef þurfa þykir. En eg held að þessi ástæða sé neyðarúrræði þeirra og ekkert annað.
Því hefir verið haldið fram, að nauðsynin á útgáfu þingtíðindanna sé mikil; það getur vel verið að svo sé, ef þau væru lesin, en engin sönnun er það fyrir því, þótt einn þm. geti frætt oss um, að þau séu lesin í hans sveit. Það, sem veltur á og máli skiftir er, hvort sú fræðsla vegur upp á móti 9 —10 þús. krónum, og þar afleiðandi að gera sér erfiðara fyrir að styrkja eitthvert þarft fyrirtæki.
Eg segi, að þessi fjáreyðsla sé óþörf, því þeim mönnum fækkar altaf ár frá ári, sem hirða um að lesa alþingistíðindin, og það þarf að leggja áherzlu á að vera ekki að eyða mörgum þús. kr. í tóman óþarfa.
Eg óska því eftir, að málinu sé vísað til 2. umr.