06.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1634 í B-deild Alþingistíðinda. (2199)
110. mál, þingtíðindaprentun
Bjarni Jónsson:
Það er undarlegt, hvað gert er mikið úr þessari till. um að hætta við prentun þingtíðindanna, þótt landsmenn hafi hvorki gagn né gleði af þeim og enginn lesi þau. (Jón Jónsson S.-Múl.: Ósatt.). Með leyfi hæstv. forseta skal eg lesa það sem þingmálafundur Dalamanna segir um þetta; hann skorar á alþingi að afnema útgáfu þingtíðindanna. Þeir ættu að hafa leyfi til að segja sinn vilja, án þess að gripið sé fram í og brugðið um ósannindi.
Það hefir verið kvartað yfir því, að vont væri að afnema skriftir vegna námsmanna, en kynleg er sú ástæða, þegar þingið er háð að vetrinum. Eg held að sá maður, sem talaði þetta, mundi hafa neitað skólapiltum um leyfi til að sækja um slíka stöðu, ef hann hefði verið í stjórn mentamálanna. Eg held það yrði hægra að veita þeim styrk á annan hátt, án þess að þurfa að leggja mikið í pappír, svertu o. s frv.
Það hefir verið tekið fram hér, að því fé væri ekki kastað á glæ, sem varið væri til prentunarinnar; það er rétt, að það er engu fé kastað á glæ, sem rennur inn í landið, en eg hygg, að fénu mundi betur varið með því að styrkja útgáfu góðra bóka.
Ein mótbáran gegn frumv. er sú, að alt vald sé lagt í hendur forsetanna. 1 10. gr. þingskapanna stendur að forsetar standi fyrir útgáfu alþingistíðindanna og annað ekki, en séu þau afnumin, geta þeir það auðvitað ekki. Þá fellur sú forstaða burt af sjálfu sér. Hitt eru munnskálp og lögvillur, að forsetum sé með þeirri grein gefin nokkur yfirráð yfir því, hvort alþingistíðindin séu gefin út eða ekki. Þeim er að eins gert að skyldu að sjá um útgáfuna, ef hún er nokkur; en það er að sjálfsögðu á valdi þingsins. — Ekkert er auðveldara en að gera brt.till. Eg sé ekki hvaða herhlaup verið er að gera á þetta meinlausa frumv.