19.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í B-deild Alþingistíðinda. (22)
1. mál, fjárlög 1910 og 1911
Steingrímur Jónsson:
Eg vil leyfa mér að tala um nokkrar af br.tillögum þeim, sem fram hafa komið við frv., og skal eg byrja á hinni 31. br till. nefndarinnar, sem er um það, að á eftir staflið c í 14. gr. B, VII. b, 5, komi nýr stafliður svohljóðandi: »Til ungmennaskóla í sambandi við barnaskólann á Ísafirði 2500—2500«. Hér ímynda eg mér að af vangá hafi fallið burt, að þetta sé með sömu skilyrðum og ákveðið er um aðra ungmennaskóla, og eg vona að leiðrétting á þessu komist inn við 3. umr.
Þá kem eg að br.till. við 14. gr. B. VHI. c, þar sem farið er fram á, að tillagið úr sveitarsjóði eða annarsstaðar frá til unglingaskóla þurfi eigi að vera meir en hálfum landssjóðsstyrknum nemur. Eg get ekki verið samþykkur þessari br.till. og það af þeirri ástæðu, að eg álít rétt að skólarnir verði að hafa dálítið fyrir því sjálfir að komast á legg. Eg tel nægilegt að landsjóður veiti helming þess sem kæmi annarstaðar að.
Þá kem eg að 42. brt. nefndarinnar, sem er um það, að færa niður styrkinn til Guðmundar skálds Magnússonar úr 800 kr. í 600 kr. hvort árið; þessa breytingu get eg ekki samþykt með háttv. meiri hluta nefndarinnar. Eins og kunnugt er, leggur þessi ungi og efnilegi maður mikið á sig við ritstörf sín og hefir þegar lagt talsverðan skerf til bókmenta vorra; og mér er kunnugt um, að honum mun þörf á styrk ekki síður en mörgum öðrum, enda verðskuldar hann, að minni hyggju, 800 kr. styrk.
Í sambandi við þetta skal eg leyfa mér að minnast á, að eg sakna nafns eins manns meðal nafna þeirra manna, sem styrks njóta úr landsjóði til skáldlegra iðkana, og þessi maður er Jóhann skáld Sigurjónsson. Eg ímynda mér að flestir hinna háttv. þingdeildarmanna hafi séð leikið hið nýja leikrit hans »Bóndinn á Hrauni« og séu mér sammála um það, að höfundur þess eigi það skilið, að honum sé gaumur gefinn. Jóhann Sigurjónsson hefir dvalið lengi erlendis og lagt mikla stund á leikritagerð og gefið út leikrit á dönsku áður, sem hann hlaut almenna viðurkenningu fyrir. Eg get þess um leið, að eg tel líkegt að eg styðji að því að koma inn br.tillögu um þetta við 3. umræðu.
Viðvíkjandi br.till. á þgskj. 499 hefi eg það að segja, að mér er kunnugt um að leikfélagið á Akureyri hefir starfað í mörg ár og er þess vert, að það sé styrkt á móts við önnur leikfélög (leikfélagið í Reykjavík).
Þá kem eg að 45. br.till. nefndarinnar, sem er þess efnis, að styrkurinn til Jóns ritstjóra Ólafssonar til þess að semja íslenzka orðabók sé færður niður í 960 kr. úr 1500 kr. Þessi styrkur er bundinn við 60 kr. fyrir hverja örk prentaða, sem er alls ekki of mikið; en mér finst augljóst, að ef maðurinn getur afkastað meiru en þessum 960 kr. svarar eða 16 örkum, þá eigi hann auðvitað meira skilið. Eg hefði í minsta lagi getað látið mér nægja 1200 kr., en 960 kr. þykir mér alt of lítið.
Þá er 55. br.till. nefndarinnar, sem er þess efnis, að styrkurinn til húsmæðrakenslu á Eiðum falli burt. Mér þótti mjög vænt um þegar neðri deild tók upp þessa breytingu á fjárlögunum, af því að mér þætti gott ef slík kensla gæti sem fyrst byrjað á Austurlandi. Á Norðurlandi er þesskonar kensla þegar komin á. Þessi styrkveiting virðist því fremur réttmæt, sem beiðni hefir komið frá skólastjórninni á Eiðum urn þetta, enda má ganga út frá því, að hér sé um gagnlegt fyrirtæki að ræða.
Á þingskjali 493 er tekin upp tillaga fráfarandi stjórnar um að veita 2700 kr. til aðstoðarverkfræðings til rannsókna og mælinga viðvíkjandi járnbrautarlagning austur. Á þinginu 1907 voru veittar 16500 kr. til þessara rannsókna en varið til rannsóknanna verki sem mundi hafa kostað oss 30—40 þús. kr., og get eg því ekki betur séð, en það sé sjálfsagt, að þingið nú veiti þennan styrk til þess að fullkomna verkið og það án tillits til þess, hvort þingdeildarmenn álíta, að líklegt sé að járnbraut verði lögð austur eða ekki, því það er harla óviðkunnanlegt, að hætta svo við hálfunnið verk, enda er hér ekki farið fram á meira fé en svo, þar sem eru aðeins 2700 kr., að eg álít algerlega rangt, að fella fjárveitinguna burt og draga málið vegna þessara lítilfjörlegu útláta.
71. br.till. nefndarinnar er sú, að færa lánveitingu úr viðlagasjóði til Björgvins sýslumanns Vigfússonar niður úr 12000 kr. í 4000 kr. Þessu get eg verið samþykkur. En aftur á móti er eg því mótfallinn, sem lagt er til á þgskj. 507, að fella lánveitingu þessa burt, því eg álít að þessi sýslumaður eigi rétt á slíkri lánveitingu, til jafns við aðra sýslumenn og embættismenn, sem þess verða aðnjótandi. Það hafa meira að segja margir sýslumenn fengið samskonar lán, án þess að sækja um þau til alþingis, því það er gömul venja, og ef til vill konungsbréf fyrir því, að stjórnin megi veita slík lán úr viðlagasjóði. Mér er einnig kunnugt um að læknar hafa fengið samskonar lán hjá stjórninni. Eg tel því þennan sýslumann fullkomlega hafa rétt til þessa láns. Á sama þgskj. (507) er farið fram á 500 kr. hvort árið til síra Einars Þórðarsonar. Eg er þessu fullkoml. samþykkur og greiði atkvæði með því og skírskota, að því er þetta snertir, til þess sem háttv. 2. þm. G. K. sagði þessu viðvíkjandi. Þessi fjárveiting er að mínu áliti rétt og sanngjörn og á betur við hér en víða annarsstaðar.
Á þgskj. 499 er farið fram á 300 kr. hvort árið til grasfræðisgarðs í Reykjavík; eg er því fylgjandi og álít nauðsynlegt að koma hér upp þess konar garði. Það ber ekki allsjaldan við hér í deildinni, að svo er kveðið að orði, að eitt og annað sé sjálfstæðisvottur, en það má segja hér ekki hvað sízt. Það er mikil þörf á þess konar garði til þess að menn geti með sínum eigin augum séð »flóru« þessa lands. Eg get ekki dæmt um hve mikið fé muni þurfa til slíks fyrirtækis, en af því að hv. 6. kgk. þm. ber tillöguna fram, þá efast eg ekki um að 300 kr. séu þó svo mikið, að nokkurt gagn geti orðið af því.
Eg skal geta þess út af 39. br.till. nefndarinnar, þar sem hún leggur til að fella burt styrkinn til að semja rit um þjóðréttarstöðu Íslands, að eg er samþykkur þeirri tillögu, en ég er aftur á móti mótfallinn tillögunni á þgskj. 516 um að veita styrkinn en fella burt ákvæðið um að þingið skipi nefnd til þess að annast þjóðréttarsöguna. Þessi liður yrði engu aðgengilegri fyrir það, þó nefndin félli burt; þá yrði fjárveitingin hreinn stjórnarbitlingur. Það ætti miklu betur við, að veita laun fyrir rit þetta þegar það væri búið, og þá altaf hægt að veita þeim féð, sem álitið er að bezt verkið hafi samið. En eg álít ekki eiga við, að setja þessa þriggja manna nefnd fyrirfram, og er þessvegna með því að að fella það ákvæði burt.
Á þgskj. 496 er farið fram á lán til barnaskólabygginga þar, sem eigi verður komist hjá að byggja samkvæmt fræðslulögunum. Eg hélt því fram á þinginu 1907, að það væri nauðsynlegt og jafnvel skylt þinginu, að veita þessi lán; en því var þá andæft og felt vegna þess að þá væri eigi fé fyrir hendi. Það má nú ef til vill segja svo enn, þó eg fyrir mitt leyti álíti, að það komi ekki til mála, að neita um slíka fjárveitingu vegna fjárskorts, eftir því sem fjárlögin nú líta út, og það ætti að standa ofar mörgu sem á þeim stendur. Því það er áreiðanlegt, að með fræðslulögunum voru lagðar þungar kvaðir á hreppstjórnirnar; en það er að vísu rétt, að hlutaðeigendur kosti nokkru til þessa máls.
Eg hefi talið saman lánsheimildirnar og eru þær 265500 kr. að upphæð, fyrir utan ábyrgðina fyrir heilsuhælið. Hér við bætast svo ef til vill 30000 kr. til Hafnarfjarðar og 5000 kr. lánveiting til Jóhannesar Reykdals, en bæði er það, að búast má við að sumar lánsheimildirnar verði ekki notaðar — skilyrði ekki uppfylt — og í annan stað ber og þess að gæta, að sparist jafnmikið og gert er ráð fyrir af meiri hluta fjárlaganefndarinnar, þá hlýtur að verða mikill tekjuafgangur á næsta fjárhagstímabili. Það eru því allar líkur til að veita lán þau sem farið er fram á á þgskj. 496, og eg álít að þau geti komið að svo miklu gagni, að eg vilji eindregið ráða deildinni til þess að samþykkja tillöguna.
Þá er eg því mótfallinn að hækka styrkinn til Einars Jónssonar myndasmiðs úr 1200 kr. upp í 2000 kr. á ári — ekki af því, að eg vilji ekki styrkja þennan efnilega og fátæka listamann, heldur af því, að eg tel það ekki heppilegt, hvorki fyrir hann sjálfan né okkur Íslendinga, að styrkurinn sé svo hár, að hann þurfi lítið eða ekkert að berjast fyrir lífinu, — það er við búið að það myndi draga úr starfsþreki hans.
Háttv. 1. kgk. þm. fann að því, að nefndin leggur til, að fjárveitingin til kennaralauna við Hvanneyrarskólann verði færð niður um 300 kr. Eftir þeim upplýsingum, sem nefndin hefir fengið, þá eru þessar 300 kr. ætlaðar kennara, sem hættur er að kenna, en ef svo er, þá virðist engin ástæða til þess að hækka laun hans, hvað miklum hæfileikum sem hann annars kann að vera gæddur, því að þeir koma þá skólanum að litlu gagni.