02.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 470 í B-deild Alþingistíðinda. (220)
9. mál, ellistyrkur
Sigurður Hjörleifsson:
Eg þykist vita fyrir forlög þessa máls í deildinni. En eg vil þó ekki láta það fara svo að minnast ekki á það, að eg álít þá grundvallarreglu, sem hér á að fara eftir, ranga. Eg býst við því, að ekki muni líða á löngu, að þessum lögum verði breytt aftur.
Það, sem vér þörfnumst og eigum að fá, er ekki styrktarsjóður heldur tryggingarsjóður, ekki eingöngu fyrir ellina heldur líka fyrir sjúkdóma.
Mér hefir ekki beint dottið í hug að koma með breyt.till. í þessa átt, því að eg álít að þetta sé svo mikil breyting á grundvallaratriðum frumv., að ekki sé hægt að káka við það með breytingartillögum, heldur yrði að semja frumv. upp af nýju.
En til þess að reyna að gera okkur grein fyrir því, hvaða augum almenningur mundi líta á svona sjóð, sem hér ræðir um, þá gætum vér hugsað oss tvo sjóði, annan eins og þennan, en hinn væri tryggingarsjóður. Vér gætum hugsað oss, að þessir tveir sjóðir ynnu hver við hliðina á öðrum. Nú kemur maður og spyr hvers hann megi vænta, ef hann feli sjóðnum fé sitt. Í ellistyrktarsjóðnum fær hann það svar, að hann muni síðar meir geta fengið styrk úr sjóðnum, ef hann sækti um hann til þeirra manna, sem annars útbýta fátækrastyrk, og geti líka sýnt vottorð um það, að hann sé styrkþurfi og styrks verðugur. Í hinum sjóðnum, tryggingarsjóðnum, er honum gefið það svar, að hann fái fé úr sjóðnum að sama skapi og hann leggi til hans. Eg trúi tæplega öðru, en að allur þorri manna mundi fara í tryggingarsjóðinn, ef þeir mættu kjósa um hvorn sjóðinn þeir vildu heldur.
Mér þótti ekki við eiga að láta frv. fara svo hér frá deildinni að þessa yrði ekki minst.