08.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1639 í B-deild Alþingistíðinda. (2203)

110. mál, þingtíðindaprentun

Jón Magnússon:

Mér þótti það undarlegt að heyra háttv. þm. Barð. (B. J.) vera að tala um það, að meiri hlutinn skyldi ekki beygja sig fyrir minni hlutanum í þessu máli, eins og það gæti komið fyrir. Eins og það sé ekki svo sem sjálfsagt, að vilji meiri hlutinn að málið fái framgang, þá gangi það og fram, en þrátt fyrir það, hefir minni hlutinn fult leyfi til þess að láta álit sitt í ljósi.

Það var sagt við 1. umr. þessa frv., að meiningin með frumv. þessu væri einungis sú, að fá afnumið lagahaftið, og háttv. flutnm. (B. J.) hélt því fram, að það væri einungis form — til þess að þingið hefði óbundnar hendur í þessu efni. En háttv. þm. Dal. (B. J.) var svo meinlegur að koma því upp, að það var dálítið annað, sem hann meinti með því, heldur en flutnm. (B. J.), sem sé það, að hætta ætti við að prenta alþingistíðindin, og þessu áliti sínu til frekari áréttingar, las hann upp kafla úr þingmálafundargerð Dalamanna. — Eg ætla því aðallega að tala um málið, eins og það væri tilgangurinn að hætta að prenta þingtíðindin, — því það hlýtur að vera tilgangur frumv., enda væri hér um engan sparnað að ræða, ef halda á áfram að prenta þingtíðindin, eins eftir sem áður. (Björn Jónsson: því ræður þingið). Vitanlega ræður þingið því — en það er ekki alt af sami vilji, sem ræður á þinginu. — Mér varð það á við 1. umr., að láta mér þau orð um munn fara, að eg sæi ekki svo mikið eftir peningum þeim, sem ganga til þingskriftanna, af því að þeir hefðu oft komið efnilegum námsmönnum og öðrum ungum mönnum að gagni til þess að afla sér menningar. Og eg stend við þetta; eg stend við það, að eg tel peningum landsins að þessu leyti vel varið. Hitt veit eg vel, að þetta er ekki neitt aðalatriði í málinu. Það var sagt, að mál þetta væri svo lítilsvert, að óþarfi væri að vera að tala mikið um það. Getur verið að svo sé í augum háttv. flutnm. (B. J.). Fyrir mínum augum lítur það alt öðruvísi út. — Fyrir mér er það mikilsvert, að það sem gerist hér á alþingi verði alþjóð kunnugt. Mér finst það undarlegt, ef hér á að ríkja þingræði og þjóðræði, að gera kjósendum ómögulegt að kynna sér framkomu þingmanna sinna á alþingi. Því er heldur ekki hægt að neita, að margur hefir fengið mikinn »pólitískan« fróðleik úr alþingistíðindunum, og við gerum alt of lítið úr þm., ef það er alt einkisvert sem þeir segja. Hér á alþingi eru þó saman komnir allajafna þeir menn, er eigi eru síztir meðal þjóðarinnar, og oft hafa þar verið beztu menn hennar.

Háttv. þm. Barð. (B. J.) hélt því fram, að sér væri þetta alls ekki kappsmál. Mér sýnist hinn háttv. þm. þó leggja mjög mikið kapp á þetta. Ef hinn háttv. meiri hluti vill koma málinu fram, þá gerir hann það auðvitað, eins og eg hefi áður sagt, en ber þá og ábyrgðina; skal eg ekki tala frekara um það. Hinu leyfi eg mér að mótmæla bæði fyrir mína hönd og minna flokksmanna, að minni hlutinn sé á móti þessu frumv., af því að minni hluta menn séu hluthafar í prentsmiðjunni Gutenberg. — Þetta getur ekki verið rétt, því að mér vitanlega á enginn þm. minni hlutans

nú og heldur ekki neinn þm. í meiri hluta síðasta þings nokkurn hlut í þeirri prentsmiðju. Eigin hagsmunir geta því ekki hafa komið oss til að hlynna að Gutenberg. Það var talað um það, að þingtíðindin væru einskis virði vegna þess, að ræðurnar kæmu þar ekki fyrir almenning, eins og þm. hefðu talað þær. Yfirleitt held eg þær komi í þingtíðindunum nokkurnveginn þannig í aðalatriðum, sem þær hafa verið fluttar, og hvað við kemur þeim ræðum, er skrifaðar hafa verið á þessu þingi, þá er þeim eftir því sem eg hefi komist næst, fult svo vel náð eins og á undanfarandi þingum, en þótt svo væri, að ræðurnar væru dálítið öðruvísi en þær voru fluttar, þá sýna þær þó, eins og háttv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ó.) tók fram við 1. umr., það sem þm. vildi sagt hafa. Eg vona að frumv. þetta nái ekki samþykki hinnar háttv. deildar; mér finst alt of fljótt að samþ. það að svo komnu, skil heldur ekki í því, að það sé lífsnauðsynlegt að flýta því svo feikilega, raska þeirri skipun, er nú hefir haldist í þvínær hálfa öld.