02.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 471 í B-deild Alþingistíðinda. (221)

9. mál, ellistyrkur

Framsögum. (Kristinn Daníelsson):

Eg skal vera stuttorður. Mér virtist það, sem háttv. þm. Ak. fór fram á, alveg ný stefna í málinu og eiginlega annað mál, en hér liggur fyrir. Ef sjóðurinn yrði gerður að tryggingarsjóð, þá yrði að sjálfsögðu að greiða miklu hærra gjald til hans. En í bráðina verður tæplega hugsað um annað en að gjaldið sé sem allra lægst.

Mér skildist sem háttv. þm. færi ekki fram á þetta til þess að tefja fyrir málinu, og vona eg nú að ekkert verði gert til þess að hindra gang þess héðan frá deildinni.