08.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1653 í B-deild Alþingistíðinda. (2210)

110. mál, þingtíðindaprentun

Jón Jónsson (S.-Múl.):

Eg skal ekki lengja umræður um mál þetta, en vil að eins spyrja, hvort háttv. 1. þm. Húnv. (H. G.) hafi lesið æfisögu Péturs biskups. Skyldi hún hafa verið eins skýr, hefðu þingtíðindin frá því um miðja síðustu öld ekki verið til? Mér væri líka forvitni á að vita, hvernig hann hugsar sér skrifaða væntanlega æfisögu Jóns Sigurðssonar án þingtíðindanna.

Ekki er mér ljóst, hvað háttv. flm. meina með frv. þessu, ef geyma á ræðurnar skrifaðar í handriti. Þá verður þó undir öllum kringumstæðum að halda innanþingsskrifurunum, og þá fer sparnaðurinn ekki að verða ýkja mikill.

Þá hefir líka verið gert mikið úr því, að þingtíðindin væri gagnslaus. En eg vil leyfa mér að segja, að þessir menn fari þar með ósatt mál.

Eg held að almenningur lesi þau miklu meira en þessir menn halda, og eg er fullviss um það, að eins og varið er blöðum vorum og blaðamensku, þá eru einmitt þingtíðindin það eina rit, sem unt er að nota til þess að fá sanna pólitíska þekkingu vor á meðal, og að tala þeirra manna í hverju bygðarlagi, er nokkuð verulegt vit hefir á landsmálum, mun að miklu leyti fara eftir því, hvað margir lesa þingtíðindin.