23.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1667 í B-deild Alþingistíðinda. (2220)

111. mál, Landssjóðshluttaka í Thorefélaginu

Framsögumaður minni hlutans (Jóh. Jóhannesson):

Eg er ósamþykkur hv. meiri hluta samgöngumálanefndarinnar, aðallega af þremur ástæðum, og get því ekki ráðið til eða stutt að frv. þetta verði gert að lögum á þessu þingi. Eg vil einungis benda á þessi þrjú atriði, sem orsaka, að eg get ekki fylgt frumv. þessu. Fyrst og fremst álít eg málið alsendis ófullnægjandi undirbúið. Frumv. kemur inn á þingið frá meiri hluta samgöngumálanefndarinnar. Hún er að vísu skipuð góðum og glöggum mönnum, en þeir hafa ekki til að bera þá sérþekkingu á máli því, sem hér er um að ræða, sem eigi að eins er æskileg heldur með öllu nauðsynleg.

Fyrst vér höfum fengið þingbundna stjórn búsetta í landinu, álít eg að þingið ætti ekki að ráða neinu stórmáli til lykta, sem stjórnin ekki hefir rannsakað og undirbúið, og er slíkur undirbúningur mála af stjórnarinnar hálfu einn af aðalkostum slíks stjórnarfyrirkomulags.

Þetta hefir ekki átt sér stað hér, og er það eitt nægilegt til þess, að frv. þetta sé ekki gert að lögum. Mér virðist það bera vott um fljótfærni og nokkurskonar skort á ábyrgðartilfinningu hjá háttv. meiri hluta, að ráða háttv. deild til þess að samþ. annað eins stórmál og þetta, jafn lélegur og undirbúningurinn er. Vér verðuni að gæta þess, að þær skýrslur og gögn, sem nefndin hefir haft við að styðjast og sem hún byggir alt á, er einmitt eingöngu frá þessu félagi sjálfu, sem hér á hlut að máli, sem leggur mjög svo mikla áherzlu á að fá því framgengt og sem ef til vill verður að hætta nái málið ekki fram að ganga. Mál þetta er því svo illa undirbúið, sem frekast má verða, og má því þegar af þeirri ástæðu ekki verða að lögum.

Þá er eg í öðru atriði ósamþykkur hinum háttv. meiri hluta nefndarinnar, er hann segir, að tilboð Sameinaða gufuskipafélagsins sé algerlega óaðgengilegt, og því sé nauðugur einn kosturinn að taka tilboði Thore-félagsins, Nú er svo mál með vexti, að auk áður komins tilboðs frá félaginu, sem hin fráfarandi stjórn útvegaði og lagt hefir verið fyrir þingið, er hér staddur maður úr stjórn þess, sem hefir algerlega óbundnar hendur til samninga við þingið. Ætla eg þessu til sönnunar að lesa upp bréf frá manni þessum. Bréfið er eg alveg nýbúinn að fá, svo eg hefi eigi haft tíma til þess að snara því á íslenzku en verð með leyfi hæstv. forseta að lesa það upp á dönsku. Það hljóðar svo:1*

Þýðing.

Sameinaða gufuskipafélagið

hlutafélag

Íslands deildin.

Reykjavík, 23. apríl 1909.

Herra sýslum. Jóh. Jóhannesson,

R. af Dbr.

Hér.

Til staðfestu viðtali okkar í dag skal eg hér með tjá yður:

1. Að nú sem stendur dvel eg hér í Reykjavík sakir gufuskipamálsins, eins og ráðherra Íslands var tilkynt með símskeyti 5. þ. m.;

2. að eg hefi algerlega frjálsar hendur til að gera við alþingi um gufuskipamálið hvern samning, sem vera skal, fyrir hönd Sameinaða gufuskipafélagsins, með fullum skuldbindingarkrafti fyrir félagið;

3. að eg (og þar með Sameinaða gufuskipafélagið) er fús til að taka þátt í sérhverri samninga-umleitun um þetta mál, en

4. að hin virðulega samgöngumálanefnd hefir að eins í eitt skifti (laugardaginn 17. þ. m.) kvatt mig til viðtals um þessa samninga, og

5. að upp á spurningu þá, sem herra alþingismaður Björn Kristjánsson beindi til mín á þessum fundi, um strandferðabát til að vera í förum milli Reykjavíkur og Djúpavogs, svaraði eg því, að slíkum gufubátaferðum mætti vel koma á um sex mánuði ársins, og að væntanlega mundu engin tormerki á að koma sér saman um þetta mál, og að minsta kosti væri þar ekki um annað en kostnaðarspurningu að ræða. Auk þess beindi hann til mín þeirri spurningu, hvort félagið, sem eg er umboðsmaður fyrir, sæi sér fært að hafa í förum til Íslands skip með kælirúmi og betri farþegaskip en nú eru, og svaraði eg þessu á þann hátt, að ekkert væri því til fyrirstöðu, að »Botnia« (sem samjafnaðarlaust er bezta og hraðskreiðasta skipið, sem nokkru sinni hefir verið í millilandaferðum) gæti komið t. a. m. í stað »Laura« í áætlunarferðum hennar, ef til vill, að fyrstu ferðinni (janúarferðinni) einni undantekinni.

En sé þess óskað getum vér einnig samt ráðið fram úr þessu, svo að »Botnia« taki algerlega að sér allar ferðir »Laura«, en auðvitað verður þá að taka það atriði sérstaklega til gagngerðrar samningsmeðferðar.

Þá er eg hafði heyrt allar óskir þær, sem nefndin hafði fram að bera og svarað þeim á þann hátt, sem eg hefi hér frá skýrt, þakkaði herra Björn Kristjánsson mér fyrir og lét í ljósi, að nefndin mundi síðar kveðja mig til viðtals, þegar hún vildi ræða málið við mig á ný; en alt fram á þennan dag kl. 1½ síðdegis, hefi eg engin boð fengið frá nefndinni.

Virðingarfylst.

H. Hendriksen,

Sameinaða gufuskipafélagið hlutafélag.

Formaður Íslands og Færeyja deildarinnar.

Af þessu sést, að hér er nú staddur maður, sein hefir óbundnar hendur til að semja við alþingi fyrir hönd Sameinaða gufuskipafélagsins. Og það er ekki honum að kenna, þótt samningar hafi ekki orðið, heldur er það sök samgöngumálanefndarinnar; hún hefir ekki, sem henni þó bar, leitað nægilegra samninga við þann mann, sem Sameinaða félagið sendi hingað til að semja við þingið, að því er séð verður af þeirri ástæðu einni, að h. meiri hluti hennar hefir frá byrjun ætlað sér að semja við Thorefélagið eitt. Það er því ekki rétt, sem í nefndarálitinu stendur, að oss sé nauðugur einn kostur að semja við Thorefélagið.

Um Suðurlandsbátinn er það að segja, að hægt væri að útvega hann, eins og bréfið ber með sér: hann gæti verið 150 tons og gengið frá Reykjavík til Hornafjarðar — eða jafnvel austur á Fáskrúðsfjörð. Það mundi kosta 20 þús. kr. á ári umfram hið venjulega tillag (40 þús.).

Ef þessi bátur gengi á þessu svæði um 6 mánaða tíma, þá ynnist »Hólum« tími til að fara 4 hringferðir, auk sinna venjulegu ferða, alveg að kostnaðarlausu. »Hólar« gætu á þessum ferðum komið við á Seyðisfirði, Akureyri og Ísafirði. Slík hringferð þyrfti ekki að taka nema 5 daga (frá Reykjavík og þangað aftur). Ferðunum mætti haga þannig, að 2 af þeim yrðu farnar sunnan um, en hinar 2 norðan um land.

Það dylst víst engum, að mikill hagur er að því, að »Hólar« fari þessar 4 aukaferðir, en það verður þó því að eins unt, að hinn áðurnefndi bátur taki að sér viðkomustaðina hér sunnanlands. Hagnaðurinn af slíkum ferðum mundi margborga þann 20 þús. kr. kostnað, er sérstakur bátur hefði í för með sér, því með honum yrðu trygðar miklu fleiri viðkomur í Árnes- og Skaftafellssýslum en nokkru sinni áður, og virðist nú tími til kominn að bæta úr því misrétti, er þessar sýslur hafa átt við að búa, að því er samgöngur á sjó snertir.

Auk þess má, ef þessi bátur er látinn ganga 6 mánuði á árinu milli Reykjavíkur og Fáskrúðsfjarðar, draga verulega úr styrknum til gufubáta fyrir Austfirðingafjórðung, sem á fjárlögunum er áætlaður 12,000 kr. á ári, því að mínu áliti væri eigi þörf á öðrum strandbát fyrir sunnan Seyðisfjörð, svo að í raun og veru eru það ef til vill ekki nema 10—15 þús. kr., sem Suðurlandsbáturinn og þessar 4 hringferðir Hóla kostar.

Með þessu hefir nú verið sýnt fram á, að miklar samgöngubætur megi fá hjá Sameinaða félaginu: það er því ekki rétt, sem háttv. meiri hluti nefndarinnar heldur fram, að ekki sé semjandi við þetta félag.

Þá getur háttv. meiri hluti um það, að fargjald muni hækka um ? úr því sem nú er, ef betri skip verði fengin — í stað þessara 3, sem nefnd hafa verið. En þetta er als ekki rétt. Sameinaða félagið áskilur sér að eins að hækka fargjaldið á fyrsta farrými milli landa með Botníu einni, en það er als eigi ósanngjarnt, og kemur helzt niður á erlendum ferðamönnum, þótt fargjaldið sé hærra á jafn hraðskreiðu og góðu skipi en hinum, sem lakari eru.

Þá heldur nefndin því fram, að Sameinaða félagið vilji fá eftirgjöf á hafnargjaldi, en það er engan veginn sett sem skilyrði af hálfu félagsins.

Loks er eg hinum h. meiri hluta nefndarinnar ósamþykkur um það, að ekki sé viðsjárvert fyrir landssjóð að leggja fé í slíkt fyrirtæki og þetta, og að allar líkur séu til þess, að þetta geti orðið arðvænlegt. Það er mjög vafasamt, hvort þetta yrði gróðafyrirtæki eða ekki.

Eg ætla ekki að fara ítarlega út í ástæður nefndarinnar að þessu sinni, en þess vil eg þó geta, að skoðun nefndarinnar í þessu máli er bygð á áætlun þessa félags og umboðsmanns þess hér. Við það er þó ýmislegt að athuga, t. d. það, að engin vissa er fyrir því, að þessar 40 þús. kr. (ríkistillagið) mundi lenda hjá Thorefélaginu. Eg veit ekki betur, en að slík staðhæfing sé algerlega í lausu lofti gerð. Eg hefi ekki séð neina skuldbindingu um það frá innanríkismálastjórninni dönsku, að hún vildi ekki veita þennan styrk öðru félagi, en alþingi hefir samið við. Það er einmitt ástæða til að ætla, að Sameinaða félagið fái þennan styrk framvegis, þótt samið yrði við Thorefélagið af hálfu alþingis, enda hefir umboðsmaður Sameinaða félagsins hér sagt, að hann hafi heyrt yfirstjórn póstmálanna dönsku lýsa því yfir við forstjóra Sameinaða félagsins, að ekki mundi annað koma til mála, þar eð þetta félag hefði nú í 39 ár notið þessa styrks, og póststjórnin danska hefði ekkert við framkomu félagsins að athuga. Það munar heldur ekki svo lítið um 40 þús. kr. á ári. — Það eru rentur af 1 milj. króna.

Háttv. framsm. meiri hlutans (B. Kr.) lagði mikla áherzlu á það, að hlutir landssjóðs í þessu fyrirtæki væru forréttindahlutir; það átti að vera nægileg trygging fyrir því, að landssjóður biði engan halla af þátt-töku í félaginu. En eg bið menn vel að gæta að því, að forréttindahlutir eru engan veginn fullnægjandi (absolut) trygging, því að alt hlutaféð stendur að baki þeim skuldum, er á félaginu hvíla. Ef skuldir félagsins yrðu svo miklar, að þær færu fram úr andvirði eigna félagsins og þeim 300,000 kr. hlutum, sem aðrir en landssjóður ættu í því, yrði landssjóður að sitja á hakanum fyrir skuldheimtumönnunum.

Því hefir verið haldið fram, að félagið ætti 60 þús. kr. í varasjóði; og í nefndarálitinu er bent á það, að á einu ári hafi verið lagðar 32 þús. kr. í þennan sjóð. Er sjóðurinn þá ekki nokkuð lítill — ekki nema 60 þús. kr. eftir öll þessi ár?

Menn verða að gæta þess, að þessi sjóður er aðallega endurbyggingarsjóður skipanna; hann er því nokkuð lítill eftir virðingarverði skipanna, sem eru boðin landssjóði fyrir 850 þús. kr. Og þegar nú þess er gætt, að árlega er lagt í hann fé, og þó er hann ekki meiri en þetta, þá hlýtur miklu af fénu að vera varið til árlegra aðgerða skipanna; að öðrum kosti væri sjóðurinn miklu stærri. Nefndin hefir að vísu skýrslu um það frá umboðsmanni félagsins, að það kosti eigi nema 75 þús. kr. á ári að halda úti skipi eins og »Sterling«. En »Hólar« þurfa 85 þús. kr. árlega, og 130—140 þús. kr. kostar að halda »Ceres« úti árlega. Og minni getur kostnaðurinn ekki verið við »Sterling«. Það er því of lágt áætlað hjá nefndinni, að úthald allra skipanna kosti ekki nema 500 þús. kr. á ári. Það mundi að minsta kosti nema 675—725 þús. kr. árlega. Það er því bert, að starfsfé það, sem félaginu er ætlað að vinna með, er alt of lítið.

Hinni háttv. nefnd er eg algerlega ósamdóma um það, að komið geti til mála að leggja sérstakt gjald á vöruflutninga hingað á öðrum skipum en þeim, sem landssjóður ætti hlut í. Eg efast mjög um, að slíkt væri gerlegt, því sú er skoðun manna alment, að siglingar eigi alstaðar að vera frjálsar,

eða að minsta kosti sé öllum þar gert jafnt undir höfði. Og eg geng nauðugur að því að binda landssjóð því fyrirtæki, er leitt gæti til þess, að alþingi neyddist til að semja síðar slík lög, til þess að koma í veg fyrir að landið biði stórhalla af fyrirtækinu Það væru neyðarúrræði, en þó nauðugur einn kostur, þegar í þvæluna væri komið, annaðhvort að láta landssjóð tapa stórfé eða þá að taka til þessa óyndisúrræðis.

Eg skal svo ekki fjölyrða meira um þetta nú, en eg vil lýsa því yfir, að eg get als ekki stutt að því, að frv. þetta verði að lögum á þessu þingi. Það gæti komið til mála, ef það yrði undirbúið rækilega af stjórninni til næsta þings, þegar þjóðin hefir sagt álit sitt um það og þingmenn íhugað það eftir föngum.